Bæjarráð Grindavíkur - 1353. fundur
- 10.06.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1353
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
1. Starfslok leikskólastjóra á Laut
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs gerði grein fyrir því að núverandi skólastjóri Leikskólans Lautar hyggist láta af störfum og hefja lífeyristöku um næstu áramót.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að ganga til samninga við skólastjóra um framkvæmd starfsloka hennar og leggja fyrir bæjarráð.2. Beiðni um styrk til klæðningar golfskála
GG fer fram á að styrkur til frágangs og malbikunar bílastæða komist á fjárhagsáætlun 2014 eða 2015
Golfklúbbur Grindavíkur óskar eftir því að styrkur til frágangs og malbikunar bílastæða komist á fjárhagsáætlun 2014 eða 2015.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar í frístunda-og menningarnefnd.3. Fasteignagjöld 2014
Samanburður fasteignagjalda 2014 í 27 sveitarfélögum.
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir samanburði fasteignagjalda í 27 sveitarfélögum.
4. Ósk um niðurfellingu eða lækkun á leigu á íþróttahúsi
Körfuknattleiksdeild UMFG óskar eftir niðurfellingu eða lækkun á leigu á íþróttahúsinu um Sjómannadagshelgina.
Í ljósi þess að fulltrúar Körfuknattleiksdeildar lögðu á sig ómælda og aðstoð við flutning skemmtidagskrár Sjóarans síkáta á föstudagskvöldið inn í íþróttahúsið, samþykkir bæjarráð að fella leiguna niður að fullu.5. Lausar skólastofur
Bæjarstjóri leggur fram minnisblað um lausar skólastofur í eigu Grindavíkurbæjar, en eftirspurn er eftir slíkum stofum til kaups.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra frístunda-og menningarsviðs að meta hve margar lausar skólastofur Grindavíkurbær þarf að eiga til framtíðar.6. Samningur um vinnu sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs fyrir Sv. Voga
Drög að samningi milli Grindavíkurbæjar og Sveitarfélagsins Voga lögð fram, um vinnu sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs fyrir Sv. Voga í tengslum við útgáfu framkvæmdaleyfis Suðvesturlína.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningnum til undirritunar og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.7. Samningur um þjónustu vegna netþjóna
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir framlengingu á samningi við Omnis vegna netþjónustu.
Breytingin felur í sér lækkun á kostnaði frá fyrri samningi.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur sviðsstjóra að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2014 þar sem fram koma breytingar á launaliðum og þjónustukaupum.8. Skortur á menntuðum kennurum skólaárið 2014 - 2015
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs gerði grein fyrir tillögu fræðslunefndar.
Fræðslunefnd leggur til að skólastjórnendum í leik- og grunnskóla verði veitt heimild til að greiða starfsfólki, sem að útskrifaðist með B.Ed. gráðu í grunn- og/eða leikskólakennarafræðum frá og með árinu 2012, sömu laun og þeim sem eru með sömu gráðu og leyfisbréf að auki, að því tilskildu að undanþága fáist fyrir ráðningu þeirra frá undanþágunefnd. Heimildin gildi næsta skólaár.
Bæjarráð samþykkir tillögu fræðslunefndar hvað varðar grunnskóla, en óskar eftir frekari upplýsingum hvað varðar leikskóla.9. Umsókn um styrk til kvikmyndagerðar
Ása Helga Hjörleifsdóttir óskar eftir styrk til vinnu við tökustaðaleit fyrir kvikmyndaverkefni um Svaninn eftir Guðberg Bergsson.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 25.000 kr. sem færist á lið bæjarráðs.10. Öldungaráð á Suðurnesjum
Fundargerðir undirbúningsfunda Öldungaráðs lagðar fram.