Bæjarráð Grindavíkur - 1338. fundur
- 07.01.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1338
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
1. Reglur um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis hjá Grindavíkurbæ
Drög að reglum um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis hjá Grindavíkurbæ lagðar fram og ræddar. Félagsmálanefnd hefur samþykkt reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar í félagsmálanefnd með ábendingum bæjarráðs.2. Beiðni um heimild til að leigja aðstöðu fyrir dagforeldraþjónustu
Tillaga að leigusamningi lögð fram ásamt uppfærðri kostnaðaráætlun.
Tillaga að samningi um leigu og umsjón á færanlegri kennslustofu á leikvelli við Hraunbraut í Grindavík lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að flytja eina færanlega kennslustofu frá Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut á leikvöll við Hraunbraut með það að markmiði að kennslustofan verði leigð út til dagforeldra.
Kostnaður við flutninginn og nauðsynlegt viðhald á stofunni verður greiddur af viðhaldssjóði Eignasjóðs.3. Veikindaréttur starfsmanna.
Dómur félagsdóms nr. 10/2013, Alþýðusamband Íslands gegn Grindavíkurbæ lagður fram.
Málið fór fyrir félagsdóm þar sem Starfsgreinasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga voru ósammála um túlkun kjarasamnings. Báðum aðilum þótti mikilvægt að fá málið fyrir félagsdóm til að ljóst væri hvernig ætti að túlka kjarasamninginn áður en kjarasamningsviðræður hæfust á nýju ári.
Niðurstaðan var að túlkun Starfsgreinasambands Íslands var metin rétt og mun Grindavíkurbær greiða málskostnað ásamt launum í veikindaleyfi í samræmi við dómsniðurstöðu. Málskostnaður er áætlaður 1 milljón kr.
Fulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúi D ? lista er mjög undrandi á því að málið hafi ekki verið tekið fyrir í bæjarráði til umræðu, áður en því var vísað til Félagsdóms.4. Afskriftir viðskiptakrafna
Lagður fram listi yfir fyrndar kröfur sem þarf að færa út úr bókum bæjarins með beinni afskrift.
Lagður fram listi yfir fyrndar kröfur sem þarf að færa út úr bókum bæjarins með beinni afskrift.
Bæjarráð samþykkir afskrift fyrndra krafna frá árunum 2001-2008 að fjárhæð 12.840.185 kr.5. Ágóðahlutdeild 2012 vegna trygginga hjá Sjóvá.
Yfirlit um ágóðahlutdeild vegna trygginga hjá Sjóvá vegna ársins 2012 lagt fram. Ágóðahlutdeildin er kr. 545.855.
6. Tryggingar Grindavíkurbæjar
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og bæjarstjóri gerðu grein fyrir vinnu við undirbúning útboðs á tryggingum Grindavíkurbæjar. Undirbúningur hefur verið unnin í samstarfi við Sandgerðisbæ, Sveitarfélagið Garð og Sveitarfélagið Voga. Fenginn var óháður ráðgjafi til að aðstoða við undirbúninginn sem leggur til að samnningur Grindavíkurbæjar við Sjóvá verði endurnýjaður.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við Sjóvá og leggja samninginn fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.7. Beiðni um lóð á iðnaðarsvæði merkt i5 á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030
Tillaga að endurnýjun viljayfirlýsingar lögð fram
Tillaga að endurnýjun viljayfirlýsingar milli Grindavíkurbæjar og IceAq ehf. lögð fram.
8. Lóð undir gróðurhús
Minnisblað um lóðamál sem bæjarstjóri tók saman fyrir atvinnuvegaráðuneytið
Minnisblað um lóðamál um lóðamál lagt fram.
9. Ósk um styrk á móti gatnagerðargjöldum reiðhallar Brimfaxa
Hestamannafélagið Brimfaxi óskar eftir styrk á móti gatnagerðargjöldum reiðhallar félagsins að Hópsheiði 34.
Bæjarráð samþykkir að veita Brimfaxa styrk að fjárhæð 36.274.005 kr. á móti gatnagerðargjöldum reiðhallar, en áréttar að greiða skuli fasteignagjöld af hesthúsum sem ráðgert er að byggja við reiðhöllina.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð 36.274.005 kr. sem komi til lækkunar á rekstrarniðurstöðu ársins.10. Vetrarþjónusta á Nesvegi og Suðurstrandarvegi
Bæjarráð Grindavíkurbæjar skorar á Vegagerðina að bæta söltun og aðra vetrarþjónustu á Nesvegi og Suðurstrandarvegi. Undanfarna daga hafa fjölmargir ökumenn lent í verulegum vandræðum á þessum leiðum vegna hálku, og hefur Björgunarsveitin Þorbjörn þurft að fara í fjölda útkalla vegna þessa.
Bæjarráð skorar jafnframt á Vegagerðina að koma upp mælum og upplýsingaskiltum á Grindavíkurveg um loft- og veghita og vindstyrk, einsog tíðkast um fjölmarga þjóðvegi.11. Beiðni um umsögn um umsókn Pepp ehf. um rekstrarleyfi í flokki I að Hafnargötu 6
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.