Bæjarráð Grindavíkur - 1318. fundur
- 07.05.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1318
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Páll Jóhann Pálssonvaramaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Fisktækniskóli Íslands og uppbygging framhaldsnáms í Grindavík
Ólafur Jón skólastjóri kemur til fundarins.
Ólafur Jón Arnbjörnsson skólastjóri og Ólafur Þór Jóhannsson stjórnarformaður Fisktækniskóla Íslands komu á fundinn og gerðu grein fyrir stöðunni í samningamálum Fisktækniskólans og menntamálaráðuneytisins.
2. Beiðni um að systkinaafsláttur verði samtengdur milli þjónustuþátta dagforeldra, leikskóla og skólasels
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs gerði grein fyrir tillögum félagsmálanefndar og fræðslunefndar um breytingar á systkinaafsláttum í dagforeldraþjónustu, leikskóla og skólaseli.
Bæjarráð samþykkir að settir verði á systkinaafslættir milli dagforeldra, leikskóla og skólasels og felur sviðsstjóra að leggja fram tillögu um endanlega útfærslu við afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins 2014. Stefnt verði að gildistöku 1. janúar 2014.3. Drög að stjórnunaráætlun Reykjanesfólkvangs
Bæjarstj´roi gerir grein fyrir umræðum á fundi aðildarsveitarfélaga fólkvangsins þann 6. maí.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir umræðum á fundi bæjarstjóra aðildarsveitarfélaga Reykjanesfólkvangs sem fram fór 6. maí. Fundurinn var haldinn að frumkvæði Grindavíkurbæjar til að ræða framtíð Reykjanesfólkvangs og mögulega úrsögn Grindavíkurbæjar.
Á fundinum kom fram að aðildarsveitarfélögin hafa áhuga á að leggja aukinn kraft í samstarfið á vegum Reykjanesfólkvangs og var bæjarstjóra Grindavíkurbæjar og formanni stjórnar Reykjanesfólkvangs falið að leggja fram hugmyndir um hvernig það gæti orðið.4. Ósk um samstarf vegna samkomu á 10 ára gömlum uppgræðslustað vestan í Lágafelli.
Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs óskar eftir samstarfi við Grindavíkurbæ til að halda upp á 10 ára afmæli uppgræðsluverkefnis við Lágafell, en góður árangur var af verkefninu.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu og felur frístunda- og menningarfulltrúa framkvæmd málsins.5. Starfsmannamál - íþróttahús
Svar lögmanns starfsmannsins við sáttaboði lagt fram.
Afgreiðsla færð í trúnaðarbók.
6. Sustainable Feed-viljayfirlýsing
Beiðni um framlengingu viljayfirlýsingar um lóð.
Sustainable feed óskar eftir framlengingu viljayfirlýsingar um lóð undir fiskeldi í Grindavík, en núverandi yfirlýsing rennur út 31. maí næstkomandi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útbúa tillögu að framlengingu viljayfirlýsingarinnar og leggja fyrir næsta bæjarráðsfund.7. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, ráðning
Ræða auglýsinguna og starfið í ljósi ábendinga Ingvars og Sigmars.
Bæjarstjóra falið að auglýsa starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
8. Tilboð í raforkukaup frá Orkusölunni ehf.
Tilboð Orkusölunnar ehf. um afsláttarkjör í orkusölumálum til Grindavíkurbæjar lagt fram, ásamt minnisblaði sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.9. Aðalfundur Reykjanes jarðvangs ses.
Aðalfundur Reykjanes jarðvangs ses. verður haldinn í Eldey þann 8. maí.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum.10. Aðalfundur Málræktarsjóðs verður haldinn 7.júní 2013.
Aðalfundur Málræktarsjóðs verður haldinn 7.júní 2013.
Bæjarráð felur Margréti Gísladóttur forstöðumanni Bókasafns Grindavíkur að fara með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum.11. Ósk um stuðning við gerð sjónvarpsþáttar.
Prime óskar eftir stuðningi Grindavíkurbæjar við gerð sjónvarpsþáttanna Beint úr messa.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.