Bæjarráð Grindavíkur - 1473. fundur
- 06.03.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1473
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Þórir Sigfússonvaramaður
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Hópið: Aðstaða milli Hóps og stúku
Von á fumkostnaðarátlun ekki seinna en morguninn 6.3.2018. Sviðsstjóri óskar eftir heimild til að halda áfram með hönnun verkefnisins með hliðsjón af frumkostnaðaráætlun. Áætlunin er á frumstigi og er ekki nákvæm. Fyrir liggur áætlun í hönnun.
Málinu er frestað til næsta fundar og bæjarráð óskar eftir að fá forsvarsmenn knattspyrnudeildar á þann fund.
2. HP fasteignir: Verbraut 1
Tilboð um réttindaskipti
Bæjarráð telur að kvöð um umferð og sjóvarnargarð komi skýrt fram í þinglýstu stofnskjali lóðar og hafnar því erindinu.
3. Fjárhagsáætlun: Beiðni um viðauka
Beiðni um viðauka á Túngötu
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2018, vegna rekstrar sambýlis við Túngötu, deild 02561, að fjárhæð 110.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2018 á deild 02561 að fjárhæð 110.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.4. Rekstrarleyfi veitingastaðar í flokki II: Cactus veitingar ehf.
Óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi. Fyrir liggja yfirlýsingar frá Slökkviliði Grindavíkur, byggingarfulltrúa Grindavíkur og Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja.
Óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi á Stamphólsvegi 2. Fyrir liggja yfirlýsingar frá Slökkviliði Grindavíkur, byggingarfulltrúa Grindavíkur og Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.5. Vegagerðin: Myndavélar við Grindavíkurveg
Hugmyndir eru um að koma fyrir hraðamyndavélum fljótlega.
Bæjarráð fagnar þeim hugmyndum um að settar verði hraðamyndavélar á Grindavíkurveg, en mótmælir harðlega þeim áformum, að taka 40 milljónir af þegar samþykktu fé til endurbóta á Grindavíkurvegi, til að setja upp þessar myndavélar.
6. Samband ísl. sveitarfélaga: Frumvarp til breytinga á mannvirkjalögum
Gefinn er kostur á að skila umsögn til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.
Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 28. febrúar sl.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í Skipulagsnefnd þrátt fyrir að umsagnarfrestur renni út þann 8. mars nk.