Bæjarráð Grindavíkur - 1418. fundur
- 06.09.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1418
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Húsnæðismál: HTA
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu og fræðslusviðs gerði grein fyrir málinu.
Félagsmálanefnd leggur til að gengið verði frá leigusamningi við eiganda fasteignarinnar Miðbæ í Þórkötlustaðarhverfi.
Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar og felur sviðsstjóra að klára málið.2. Fjárhagsáætlun 2017-2020: Grindavíkurbær og stofnanir
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fjárhagsáætlunar lagt fram.
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fjárhagsáætlunar lagt fram.
3. Rekstraryfirlit janúar-júní 2016: Grindavíkurbær og stofnanir
Sex mánaða rekstraruppgjör og fjárfestingaáætlun
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir rekstraryfirliti Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir tímabilið janúar til júní 2016.
4. Slökkvilið Grindavíkur: ósk um aukafjárveitingu fyrir viðhald slökkvibíla
Slökkvistjóri óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2016 að fjárhæð 540.000 kr. vegna viðhalds slökkvibíla.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2016 að fjárhæð 540.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.5. Íbúðalánasjóður: Framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir
Minnisblað sambandsins lagt fram. Bárust engin viðbrögð við auglýsingunni
Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum lagt fram. Bæjarstjóri upplýsti að engin viðbrögð hefðu borist við auglýsingu eftir áhugasömum aðilum um stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar í Grindavík.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða til fundar með fulltrúum fyrirtækja og félögum launþega í Grindavík til að ræða mögulega stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar.6. Kvenfélag Grindavíkur: Samningur um afnot af Gjánni
Tillaga að breytingum í Track changes.
Frestað til næsta fundar.
7. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra: Ósk um styrk
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra óskar eftir styrk vegna reksturs sumarbúða fyrir fötluð börn og ungmenni árið 2016.
Bæjarráð samþykkir að styrkja rekstur sumarbúðanna um 196.000 kr, sem færist á lið sumardvalar í málefnum fatlaðra.8. Tillaga um stefnumótun á þjónustusvæði Suðurnesja um málefni fatlaðs fólks - Framhaldsmál 2015
Fundargerðir frá fundum bæjarstjóra og félagsmálastjóra um þjónustusvæði vegna málefna fatlaðs fólks
Fundargerðir frá fundum bæjarstjóra og félagsmálastjóra um þjónustusvæði vegna málefna fatlaðs fólks á Suðurnesjum lagðar fram og ræddar.
9. Reykjanes jarðvangur: Aðalfundur 18. september 2016
Fundarboð aðalfundar Reykjanes Jarðvangs þann 18. september næstkomandi lagt fram.
10. Reykjanesfólkvangur: flutningur á umsýslu
Bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar gerðu grein fyrir tillögu stjórnar Reykjanesfólkvangs um flutning umsýslu fólkvangsins frá Reykjavíkurborg til Grindavíkurbæjar.