Bæjarráð Grindavíkur - 1392. fundur
- 06.10.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1392
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðmundur L. Pálssonvaramaður
- Jóna Rut Jónsdóttirvaramaður
- Magnús Andri Hjaltasonvaram. áheyrnarfulltrúa
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Frístundir: Fléttaðar inn í skólatíma nemenda
Sjá minnisblað og glærur.
Þorsteinn Gunnnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kom á fundinn og kynnti hugmynd að því að frístundir verði fléttaðar inn í skólatíma nemenda að fyrirmynd frá Ísafjarðarbæ.
2. Bæjarskrifstofur Víkurbraut 62: Stækkun og breytingar
Kostnaðaráætlun lögð fram.
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri kynnti kostnaðaráætlun vegna breytinga og stækkun á bæjarskrifstofum.
3. Fasteignamat: Tillaga um endurmat eigna vegna breyttrar nýtingar
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri fór yfir minnisblað um endurmat eigna vegna breyttrar nýtingar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að útfæra nánar tillögu að framkvæmd.
4. Heilbrigiðseftirlit Suðurnes: breyting á gjaldskrá 2015
Lagt fram erindi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, dags. 29. september 2015 ásamt sundurliðaðri tillögu að gjaldskrá eftirlitsins fyrir árið 2015. Umsögn heilbrigðisnefndar Suðurnesja, dags. 17. september 2015 liggur fyrir.
Með vísan til 12. og 25. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, 25. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 8. gr. laga nr. 6/2002 um tóbaksvarnir og að fenginni umsögn Heilbrigðisnefndar Suðurnesja, samþykkir bæjarráð framlagða tillögu að gjaldskrá Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja 2015.
Gjaldskráin skal auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þegar samþykki allra sveitarstjórna á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja liggur fyrir.5. Hlutfall ófaglærðra á Leikskólanum Laut
Tillögur leikskólastjóra og fræðslunefndar um fjölgun faglærðra lagðar fram.
Bæjarráð felur leikskólastjóra að kostnaðarmeta tillögurnar fyrir fjárhagsáætlun 2016.6. Íþróttamiðstöð: Tilboð í aðgangsstýrikerfi
Sjá nánari upplýsingar í minnisblaði.
Afgreiðslu frestað.
7. Fundargerðir: fundargerðir Kvikunnar
Fundargerðin lögð fram.