Bæjarráð Grindavíkur - 1350. fundur
- 06.05.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1350
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
1. Búsetumál eldri borgara í Grindavík
Fundargerðir nefndarinnar lagðar fram ásamt tillögum. Lokafundur nefndarinnar fer fram 6. maí og í kjölfarið verða tillögur sendar út til bæjarfulltrúa.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat undir afgreiðslu þessa liðar.
Fundargerðir nefndarinnar lagðar fram ásamt tillögum.
Bæjarstjóri og sviðsstjóri gerðu grein fyrir greinargerð nefndarinnar og tillögum.
Nefndin mun halda einn fund í viðbót og afgreiða tillögurnar endanlega til bæjarstjórnar.2. Samgönguáætlun 2013-2016
Beiðni um umsögn
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2013-2016, 495. mál.
Minnisblað bæjarstjóra með áherslum Grindavíkurbæjar í samgöngumálum lagt fram.
Grindavíkurbær hefur um árabil lagt megináherslu á að endurgerð þils við Miðgarð í Grindavíkurhöfn verði í forgangi samgönguáætlunar. Það eru því vonbrigði að sú framkvæmd sé ekki á fjögurra ára samgönguáætlun 2013-2016. Framkvæmdin er sambærileg við endurgerð Suðurgarðs Sandgerðishafnar, en fyrsti áfangi þeirrar framkvæmdar er áætlaður 2016. Í Svæðisskipulagi Suðurnesja eru Grindavíkurhöfn og Sandgerðishöfn skilgreindar sem aðalfiskihafnir svæðisins.
Grindavíkurbær leggur áherslu á að endurgerð Miðgarðs verði settur á samgönguáætlun 2013-2016.
Bæjarstjóra er falið að senda inn umsögn um þingsályktunartillöguna, ásamt minnisblaði með áherslum Grindavíkurbæjar í samgöngumálum.3. Styrkir til nýsköpunar og þróunar í Grindavík
Umsóknir lagðar fram eftir auglýsingu
Grindavíkurbær auglýsti eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar og þróunar í Grindavík á sama hátt og á síðasta ári. Umsóknarfrestur var til 28. apríl.
Ein umsókn barst frá Codland vegna ráðningar tveggja nema til að vinna að markaðsrannsóknum og vöruþróun.
Bæjarráð samþykkir umsóknina og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við umsækjanda.4. Atvinnuveganefnd Alþingis óskar eftir umsögn um frumvarp til laga um veiðigjöld (fjárhæð og álagning gjalda), 568. mál.
Atvinnuveganefnd Alþingis óskar eftir umsögn um frumvarp til laga um veiðigjöld (fjárhæð og álagning gjalda), 568. mál.
Bæjarstjóra er falið að senda inn umsögn um frumvarpið.5. Aðalfundur Landskerfis bókasafna 2014
Fundarboð á aðalfund Landskerfis bókasafna lagt fram.
Bæjarráð felur Margréti Gísladóttur, forstöðukonu bókasafns Grindavíkur að sitja fundinn.6. Ársreikningur Kvikunnar áraið 2013 og aðalfundur 2014
Ársreikningur Kvikunnar 2013 lagður fram. Stjórn leggur til að aðalfundur félagsins verði haldinn 30. júní kl. 17. í Kvikunni Hafnargötu 12a. Þá gefst nýrri bæjarstjórn tækifæri til að tilnefna nýja fulltrúa í stjórnina, ef svo ber undir.
Ársreikningur ársins 2013 lagður fram. Rekstrarafgangur ársins var 1.404.256 kr.
Stjórn hefur ákveðið að aðalfundur félagsins fari fram 30. júní næstkomandi.7. Ársuppgjör 2013, Grindavíkurbær og stofnanir
Farið yfir mismun milli raunniðurstöðu og áætlunar ársins 2013
Jón Þórisson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs fór yfir helstu frávik milli raunniðurstöðu og áætlunar ársins 2013.
Bæjarráð vísar ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn 13. maí.8. Ósk um launalaust leyfi
Sigurbjörg Eyfeld Skúladóttir sækir um launalaust leyfi skólaárið 2014-2015. Umsögn skólastjóra liggur fyrir sem leggur til að beiðnin verði samþykkt. Beiðnin samræmist Vinnureglum um launalaus leyfi.
Bæjarráð samþykkir beiðnina.9. Reglur um gatnagerðargjöld
Ég bætti við síðustu málsgrein 9 gr. þetta ætti að dekka hverslags viðbyggignar.
Tillaga sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs um breytingu á 9. gr. Reglna um gatnagerðargjöld lögð fram.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.10. Skjalakerfi Grindavíkurbæjar
Beiðni um samþykkt viðauka
Afgreiðslu frestað.
11. Aðalfundur Málræktarsjóðs 6.júní 2014
Fundarboð á aðalfund Málræktarsjóðs lagt fram.
Bæjarráð felur Margréti Gísladóttur, forstöðukonu bókasafns Grindavíkur að sitja fundinn.12. Gatnagerð við Miðhóp
Beiðni um viðauka
Byggingafulltrúi óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2014 vegna gatnagerðar við Miðhóp. Í fjárhagsáætlun ársins 2014 og 2015 eru áætlaðar 3 milljónir hvort ár í gatnagerð við Miðhóp. Árið 2014 er áætlað að malbika götuna og 2015 áætlað að ljúka frágangi með hellulögn. Byggingafulltrúi hefur framkvæmt verðkönnun og er kostnaður við að ljúka malbikun 5,2 milljónir. Ekki er gert ráð fyrir að kostnaður við hellulögn lækki árið 2015. Óskað er eftir viðauka að fjárhæð 2,2 milljónir við fjárhagsáætlun ársins 2014.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur.13. Kaup á Leynisbraut 13c
Málið tekið upp að nýju að beiðni leigjanda
Kauptilboð leigjanda íbúðarinnar lagt fram til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir kauptilboð í eignina Leynisbraut 13c íbúð 2. hæð til hægri.
Bæjarstjóra falið að undirrita kaupsamning og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.14. Krafa um miskabætur vegna eineltis í Grunnskóla Grindavíkur
framhald frá fundi 1348. Svar borist frá kennaranum
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat undir afgreiðslu þessa liðar.
Framhald frá fundi 1348.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar lögmanna bæjarins.