Bæjarráð Grindavíkur - 1330. fundur
- 08.10.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1330
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Málefni bókasafns
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að tillögur um framtíð bókasafnsins vegna sameiningar við skólabókasafnið verði samþykktar.
Tillögur um framtíðarskipulag bókasafnsmála í kjölfar sameiningar almennings- og skólabókasafns lagðar fram.
Kristinn Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs fylgdi málinu eftir.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að tillögur um framtíð bókasafnsins vegna sameiningar við skólabókasafnið verði samþykktar.
Bæjarráð samþykkir tillögurnar og felur frístunda- og menningarnefnd að finna hentuga lausn á því að kennarar hafi gjaldfrjálsan aðgang að bókakosti safnsins til kennslu. Gjaldskrártillögur verða afgreiddar samhliða öðrum gjaldskrám stofnanna Grindavíkurbæjar.2. 40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að skipuð verði afmælisnefnd vegna 40 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar 2014.
Grindavíkurbær á 40 ára kaupstaðarafmæli 17. apríl 2014.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að skipuð verði afmælisnefnd af því tilefni.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að óska tilefninga í nefndina og leggja tillögu fyrir bæjarstjórn á næsta fundi.3. Beiðni um að systkinaafsláttur verði samtengdur milli þjónustuþátta dagforeldra, leikskóla og skólasels.
Nökkvi Már fylgir málinu eftir
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs gerði grein fyrir tillögum félagsmálanefndar og fræðslunefndar um breytingar á systkinaafsláttum í dagforeldraþjónustu, leikskóla og skólaseli.
Bæjarráð samþykkir að settir verði á systkinaafslættir milli dagforeldra, leikskóla og skólasels í samræmi við tillögurnar og felur félagsmálanefnd að útfæra reglur um framkvæmdina sem taki gildi 1. janúar 2014.4. Kerfisstjóri Grindavíkurbæjar. Uppsögn
Jóhann Grétarsson kerfisstjóri Grindavíkurbæjar hefur sagt starfi sínu lausu.
Bæjarráð þakkar Jóhanni fyrir vel unnin störf fyrir Grindavíkurbæ.5. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
Verkfundur nr. 11
Fundargerð 11. verkfundar lögð fram.
6. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Bæjarráð fór yfir tillögu að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar.
7. Svæðisskipulag Suðurnesja
Tillaga að starfsreglum fyrir samstarfsnefnd um svæðisskipulag á Suðurnesjum lögð fram, ásamt fundargerð síðasta fundar.
Tillaga að starfsreglum fyrir samstarfsnefnd um svæðisskipulag á Suðurnesjum lögð fram, ásamt fundargerð síðasta fundar.
8. Nýtt svæði undir skreiðarhjalla við gamla jarðvegstippinn
Tillaga að samkomulagi við Þurrkaðar fiskafurðir lagt fram
Tillaga að samkomulagi við Þurrkaðar fiskafurðir lagt fram.
Afgreiðslu frestað.9. Skúr við Þórkötlustaðaveg
Tillaga um að samið verði við lóðarhafa um að hann eignist skúrinn og skrái í fasteignamat í stað þess að Grindavíkurbær verði fyrir kostnaði við niðurrif
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.
10. Hlutabréf Grindavíkurbæjar í HS veitum
Tillaga um viðauka við ráðgjafasamning við Íslandsbanka til að halda ferlinu áfram, sbr meðfylgjandi tillaga
Tillaga um viðauka við ráðgjafasamning við Íslandsbanka um sölumeðferð hlutabréf í HS veitum lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.11. Fundargerð fundar stjórnar Reykjanesfólkvangs 3. október 2013
Fundargerðin er lögð fram.
12. Drög að stjórnunaráætlun Reykjanesfólkvangs
Ræða viðbrögð með vísan til fundargerðar RF sem liggur fyrir fundinum.
Á fundi stjórnar Reykjanesfólkvangs þann 3. október var fjallað um framgang verkefna með vísan til minnisblaðs Sverris Bollasonar og Róberts Ragnarssonar dags. 3. júní 2013.
Í minnisblaðinu var lagt upp með að aðildarsveitarfélög Reykjanesfólkvangs myndu taka afstöðu til fimm atriða fyrir 1. september 2013. Grindavíkurbær hefur þegar tekið afstöðu til allra þeirra þátta sem málið varðar og samþykkt fyrir sitt leyti tvöföldun framlags til Reykjanesfólkvangs á árinu 2013.
Bæjarráð harmar að sveitarfélögin hafi ekki tekið afstöðu til atriðanna eins og lagt var upp með. Ekki hafa enn öll sveitarfélög tekið afstöðu til tvöföldunar fjárframlaga til fólkvangsins á árinu 2013, né skilað inn umsögn um drög að stjórnunaráætlun Reykjanesfólkvangs.
Bæjarráð fer fram á að afstaða þeirra sveitarfélaga sem ekki hafa tekið afstöðu liggi fyrir eigi síðar en 1. nóvember svo hægt sé að taka ákvarðanir um framtíð Reykjanesfólkvangs.