Bæjarráð Grindavíkur - 1303. fundur
- 07.11.2012
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1303
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Dagbjartur Willardssonvaramaður
1. Endurskoðun lögreglusamþykktar fyrir Grindavíkurbæ
Fulltrúi lögreglu kemur á fundinn og fylgir því eftir.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri, Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn og Sigurður Ágústsson aðstoðaryfirlögregluþjónn komu til fundarins og gerðu grein fyrir markmiðum og innihaldi lögreglusamþykkta.
Grindavíkurbær hefur ekki afgreitt sérstaka lögreglusamþykkt, heldur gildir Reglugerð um lögreglusamþykktir nr. 1127/2007 fyrir Grindavíkurbæ.
Bæjarráð samþykkir að hefja vinnu við lögreglusamþykkt fyrir Grindavíkurbæ í upphafi nýs árs.2. Íþróttamannvirki áfangi 1.
Tillaga um að hefja innkaup á búnaði fyrir veislur.$line$Tillaga um frekari stækkun íþróttahússins. Tekin fyrir tillaga Bryndíar Gunnlaugsdóttur um að íþróttahúsið verði stækkað um fjögur bil í stað þriggja. Nefndin tekur vel í þessar hugmyndir og telur að nýting á húsinu verði mun betri með þessu móti. Viðbótarkostnaður vegna þessa yrði um 24.000.000 kr. Bygginganefnd leggur til við bæjarráð að það verði tekið til skoðunar.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda-og menningarsviðs að afla tilboða í gólfefni á íþróttasalinn fyrir viðburði og skemmtanir, svo sem teppaflísar og parket eða dansgólf og leggja fyrir næsta bæjarráðsfund. Jafnframt þarf að meta hve mikið geymslupláss þessir munir þurfa og hvort það sé til staðar.
Byggingarnefnd íþróttamannvirkja leggur til að íþróttahúsið verði stækkað um fjögur bil í stað þriggja og telur að nýting á húsinu verði mun betri með þessu móti. Viðbótarkostnaður vegna þessa er áætlaður um 24.000.000 kr.
Bæjarráð samþykkir tillögu byggingarnefndar og felur henni að útfæra hönnun byggingarinnar til samræmis.3. Íþróttamannvirki áfangi 2.
Tillaga bygginganefndar um að beitt verði forvali við útboð verkfræðilegrar hönnunar.
Bygginganefnd íþróttamannvirkja leggur til að beitt verði forvali við útboð verkfræðilegrar hönnunar og landslagshönnunar.
Bæjarráð samþykkir tillögu byggingarnefndar.4. Vatnsmælabrunnur á stofnæð við Ránargötu
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun að færa fé af eignasjóði yfir á vatnsveitu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs leggur til að strax á þessu ári verði settur niður vatnsmælabrunnur við stofnæð Ránargötu. Markmiðið er að ná betra utanumhaldi á vatnsnotkun á hafnar- og athafnarsvæði frá Mánagötu og niður að Höfn. Framkvæmdin hjálpar til við að finna leka og sinna eftirliti á ástandi lagna innan svæðissins.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2012 þar sem flutt er fé af framkvæmdaáætlun eignasjóðs yfir á vatnsveitu.5. Breyting á samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar nr. 805/2011
Rökstuðningur samkvæmt beiðni frá bæjarstjórnarfundi
Rökstuðningur samkvæmt beiðni frá bæjarstjórnarfundi lagður fram.
6. Siðareglur bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar
taka ákvörðun um vinnulag
Framhald frá 1293. fundi bæjarráðs. Minnisblað bæjarstjóra lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að hefja vinnu við gerð siðareglna í samræmi við 29. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Í upphafi árs 2013 verði haldinn opinn fundur um siðareglur bæjarstjórnar og stjórnenda Grindavíkurbæjar. Helstu hagsmunaaðilar verði sérstaklega hvattir til að mæta og stjórnendum bæjarins verði það skylt.7. Endurvinnsla og umhverfisvitund í stofnunum Grindavíkurbæjar
Mál án gagna, en vísað er til samstarfssamnings B,G og S lista. Skipa vinnuhóp eða vísa til nefndar?
Bæjarráð felur bæjarstjóra og stjórnendum bæjarins að hefja vinnu við að auka endurvinnslu og umhverfisvitund í stofnunum Grindavíkurbæjar. Í því samhengi verði byggt á reynslu Leikskólans Lautar og Heilsuleikskólans Króks.
Tillögur að aðgerðum verði lagðar fyrir bæjarráð fyrir páska 2013.8. Endurskoðun jafnréttisáætlunar Grindavíkurbæjar
Farið yfir gildandi áætlun og hafin vinna við endurskoðun. Skipa vinnuhóp?
Bæjarráð felur félagsmálanefnd að hefja vinnu við endurskoðun Jafnréttisáætlunar Grindavíkurbæjar, m.a. með vísan til þeirra áherslna sem er að finna í sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011.
Nefndin skal skila tillögum til bæjarráðs fyrir páska 2013.9. Kvenfélag Grindavíkur óskar eftir áframhaldandi leigu á þjónustuhúsi tjaldsvæðis
Kvenfélag Grindavíkur óskar eftir áframhaldandi leigu á þjónustuhúsi tjaldsvæðis í vetur.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útbúa leigusamning með fyrirvara um uppsögn verði reksturinn boðinn út.10. Ósk um ársleyfi á leikskólanum Laut
Afgreiðist á grunni 3. gr. Vinnureglna um ráðningar starfsmanna Grindavíkurbæjar.$line$Ráðningar á vegum forstöðumanna sviða og stofnana$line$3.gr.$line$Stjórnendur ráða aðra starfsmenn en þá sem tilgreindir eru í 1. og 2. gr. og veita lausn frá störfum hvort heldur er fullnaðarlausn eða tímabundin, í samráði við viðkomandi sviðsstjóra. Bæjarráð tekur ákvörðun um launalaust leyfi eigi það að vara lengur en einn mánuði, en sviðsstjóri hefur heimild til að veita launalaust leyfi til skemmri tíma.$line$Bæjarráð eitt tekur ákvörðun um launað leyfi.
Sigríður Ragna Haraldsdóttir óskar eftir ársleyfi frá starfi sínu sem leiðbeinandi á Leikskólanum Laut til að taka að sér annað starf innan leikskólans.
Bæjarráð samþykkir leyfið með vísan til 3. gr. Vinnureglna um ráðningar starfsmanna Grindavíkurbæjar.11. Samningur um rekstur Náttúrustofu Reykjaness.
http://sns.is/arsskyrslur.htm
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í rekstri Náttúrustofu Reykjaness í samstarfi við önnur sveitarfélög á Suðurnesjum.
12. Sjóvarnir í siglingahluta samgönguáætlunar árið 2013
Í siglingaáætlun er gert ráð fyrir tveimur verkefnum að fjárhæð 16,5 milljónir. Okkar hlutur er 1/8, eða um 2 milljónir. Þurfum að gera ráð fyrir þessu í áætlun 2013.
Bæjarráð samþykkir að gera ráð fyrir 2 milljóna framlagi Grindavíkurbæjar á móti framlagi ríkisins í sjóvarnir í samræmi við siglingaáætlun í áætlun ársins 2013.
13. Stefnumótun í þjónustu við eldri borgara
Í kjölfar góðrar reynslu af breytingum í þjónustu við eldri borgara með miðstöð í Víðihlíð/Miðgarði er lagt til að hafin verði vinna við stefnumörkun í þjónustu við eldri borgara til framtíðar í samræmi við hugmyndir um flutning málaflokksins til sveitarfélaga. Grindavíkurbær bjóðist til að vera tilraunasveitarfélag í málaflokknum sem feli m.a. í sér að taka yfir rekstur hjúkrunarheimilisins í Víðihlið og samreka með annari þjónustu við eldri borgara.
Í kjölfar góðrar reynslu af breytingum í þjónustu við eldri borgara með miðstöð í Víðihlíð/Miðgarði er lagt til að hafin verði vinna við stefnumörkun í þjónustu við eldri borgara til framtíðar í samræmi við hugmyndir um flutning málaflokksins til sveitarfélaga.
Bæjarráð leggur til að Grindavíkurbær bjóðist til að vera tilraunasveitarfélag í málaflokknum sem feli m.a. í sér að taka yfir rekstur hjúkrunarheimilisins í Víðihlið og samreka með annarri þjónustu við eldri borgara. Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra félagsþjónustu og fræðslusviðs að hefja viðræður við velferðarráðuneytið.14. Stofnfundur jarðvangs á Reykjanesi, Reykjanes Geopark, þann 13. nóvember 2012
Stofnsamþykktir lagðar fram og tilnefndir fulltrúar Grindavikurbæjar í stjórn
Undirbúningshópur um stofnun og þróun jarðvangs á Reykjanesi hefur boðað stofnfund sjálfseignarstofnunar um rekstur jarðvangs á Reykjanesi þriðjudaginn 13. nóvember nk. kl. 17:00. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vera fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum og undirrita stofnsamþykktir félagsins. Þá tilnefnir bæjarráð Róbert Ragnarsson sem aðalmann í stjórn stofnunarinnar og Þorstein Gunnarsson til vara.
15. Atvinna með stuðningi
Opna á umræðu um hvernig eigi að fara með stöðugildi í Atvinnu með stuðningi
Erindið er samþykkt og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs falið að útfæra verkefnið í fjárhagsáætlun ársins 2013.
16. Útikennslusvæði
Liggur fyrir beiðni frá kennurum. Skipulags- og umhverfisnefnd hefur gefið vilyrði fyrir svæði í ,,sjómannagarði". $line$Verkefnið er með milljón í fjárhagsáætlun og er í samstarfssamningi B-G og S lista. Þurfum að koma í framkvæmd.
Kennarar við Grunnskóla Grindavíkur hafa óskað eftir svæði til útikennslu. Skipulags- og umhverfisnefnd hefur gefið vilyrði fyrir svæði í Sjómannagarði við Mánagötu.
Bæjarráð samþykkir að veita 1 milljón króna til framkvæmda í fjárhagsáætlun ársins 2013 og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslumála að skipa vinnuhóp starfsfólks leik- og grunnskóla til að útfæra verkefnið.17. Velferð leikskólabarna.
Kvörtun vegna aðgengis að leikskólavist í Grindavík
Kvörtun vegna aðgengis að leikskólavist í Grindavík lögð fram ásamt svari bæjarstjóra.
18. Hluti óskipts lands Þórkötlustaðahverfis auglýstur til sölu
Auglýstur hefur verið 5,26% hlutur í óskipta landinu. Taka þarf afstöðu til þess hvort Grindavíkurbær hefur áhuga á að gera tilboð í hlutinn.
Auglýstur hefur verið til sölu 5,26% hlutur í óskiptu landi Þórkötlustaðahverfis.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera tilboð í hlutinn.19. Rekstrarfélag Grindavíkurbæjar ehf
Tillaga um að leggja félagið niður en fyrsta skrefið í því er að selja Eignasjóði fasteignina Túngötu 15-17
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs leggur til að Rekstrarfélag Grindavíkurbæjar ehf. selji Eignasjóði Grindavíkurbæjar fasteignina Túngötu 15-17 og í kjölfarið verði rekstrarfélagið lagt niður.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að útbúa nauðsynleg gögn til að félagið verði lagt niður fyrir næstu áramót.20. Minnisblað frá Samtökum orkusveitarfélaga um það hvort orkumannvirki falli undir undanþágu laga um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 og um greiðslu fasteignaskatts af þeim
Með vísan til lögfræðiálits sem Veritas lögmenn unnu fyrir Samtök orkusveitarfélaga, telur bæjarráð sýnt fram á að óheimilt sé að undanskilja tiltekin virkjanamannvirki frá greiðslu fasteignagjalda.
Bæjarráð hvetur til þess að sem fyrst verði hafnar viðræður við ríkisvaldið um nauðsynlegar lagabreytingar svo innheimta megi eðlileg gjöld af slíkum mannvirkjum. Komi ekkert út úr slíkum viðræðum telur bæjarráð að sveitarfélög verði að sækja rétt sinn í þessu máli fyrir dómstólum.21. Fundargerðir bygginganefndar íþróttamannvirkja.
Fundargerð bygginganefndar íþróttamannvirkja frá 5. nóvember 2012.
Fundargerðin er lögð fram.