Bæjarráð Grindavíkur - 1424. fundur
- 08.11.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1424
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Búsetumál eldri borgara í Grindavík: uppbygging við Víðihlíð
Framhald frá síðasta fundi
Framhald frá síðasta fundi.
Útboðsgögn og teikningar lagðar fram, ásamt minnisblaði um leigu.
Formaður leggur til að sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs verði falið að bjóða út byggingu 6 íbúða viðbyggingar við Víðihlíð, í samræmi við fyrirliggjandi útboðsgögn.
Samþykkt samhljóða.2. Beiðni um samtarf: föngun og merking villikatta
Dýraverndunarfélagið VILLIKETTIR kt. 710314-1790, óskar eftir samstarfi við Grindavíkurbæ og viðurkenningu á aðferðafræði sinni sem kennd er við TNR (Trap-Neuter-Return) eða Fanga-Gelda-Skila.
Jafnframt lagt fram minnisblað Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja um TNR aðferðafræðina.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið en hafnar þátttöku í verkefninu að þessu sinni.3. Fimleikadeild UMFG: Beiðni um styrk
Afgreiðsla frístunda- og menningarnefndar. Þar sem um fjárbeiðni er að ræða fer þetta fyrir bæjarráð.
Fimleikadeild UMFG óskar eftir styrk frá Grindavíkurbæ til þess að greiða æfingagjöld fyrir iðkendur fimleikadeildarinnar í húsnæði Fimleikaakademíu Keflavíkur.
Frístunda- og menningarefnd leggur til að erindinu verði hafnað.
Bæjarráð hafnar erindinu.4. Íþróttamannvirki: Uppbygging tengibyggingar og íþróttasalar
Tillaga að sátt við Verkís vegna niðurfalla í klefum lögð fram.
Tillaga að samkomulagi við Verkís vegna frágangs niðurfalla í klefum lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samkomulagið.5. Þjónustumiðstöð: beiðni um viðauka
Beiðni um viðauka vegna viðhalds á þjónustubíl og traktor.
Byggingafulltrúi óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2016 að fjárhæð 1.600 þúsund vegna mikils og óvænts viðhalds á bílum og tækjum Þjónustumiðstöðvar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur.6. Bótin upplýsingarit: upplýsingasíða
Óskað er eftir því að Grindavíkurbær kaupi upplýsingasíðu í Bótinni-þjónustu- og upplýsingaskrá Grindavíkur.
Bæjarráð hafnar erindinu.