Bæjarráð Grindavíkur - 1406. fundur
- 05.04.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1406
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Valgerður Jennýjardóttirvaram. áheyrnarfulltrúa
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Knattspyrnudeild UMFG: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja
Formaður og framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar mæta á fundinn
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir afgreiðslu málsins.
Jónas Þórhallsson formaður Knattspyrnudeildar UMFG og Eiríkur Leifsson framkvæmdastjóri komu til fundarins til að gera grein fyrir sjónarmiðum knattspyrnudeildarinnar.
Bæjarstjóra og sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.2. Kvikan: breytt nýting eða sala
Bæjarstjórn hafnaði á fundi sínum 29. mars gagntilboði í fasteignina Hafnargötu 12a og vísaði málinu til vinnslu bæjarráðs, ásamt stjórn Kvikunnar.
Bæjarráð leggur til að haldinn verði sameiginlegur fundur bæjarráðs og stjórnar Kvikunnar, um næstu skref.3. Búsetumál eldri borgara í Grindavík: uppbygging við Víðihlíð
Fundargerðir 2 og 3
Fundargerðir funda 2 og 3 lagðar fram.
4. Samtök orkusveitarfélaga: ársreikningur ársins 2015
Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga vegna ársins 2015 lagður fram.
5. Styrkbeiðni: vegna Landsfundar Upplýsingar á Suðurnesjum 29. og 30. september 2016
Bæjarráð samþykkir að styðja landsfund Upplýsingar um 75.000 kr.
6. Sölutilboð: lóðir við Víkurbraut og Sunnubraut
Bréf Jóns G. Briem hrl. fyrir umbjóðenda lagt fram, þar sem óskað er eftir því að Grindavíkurbær svari því hvort sveitarfélagið hafi áhuga á að eignast tilteknar lóðir við Víkurbraut og Sunnubraut.
Bæjarstjóra falið að afla frekari gagna.