Bæjarráð Grindavíkur - 1365. fundur
- 11.11.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1365
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja.
Samanburður á kostnaði lagður fram. ÁH kynnir.$line$Tillaga um skipan nefndar
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti mismunandi valkosti við byggingu aðstöðu fyrir bardagaíþróttir og búningsklefa, ásamt kostnaðarmati.
Formaður bæjarráðs lagði fram tillögu um að skipuð verði nefnd sem skuli gera breytingar á fyrirliggjandi tillögu um uppbyggingu íþróttamannvirkja. Í tillögunni verði gert ráð fyrir að í forgangi verði að gera aðstöðu fyrir bardagaíþróttir, búningsklefa og aðra nauðsynlega aðstöðu. Auk þess að unnin verði drög að frumhönnun fyrir nýtt íþróttahús í samræmi við málefnasamning D- og G-lista. Að öðru leyti verði fyrirliggjandi tillaga óbreytt.
Lagt er til að í nefndinni verði sex fulltrúar.
Þrír tilnefndir af meirihluta bæjarstjórnar
Tveir tilnefndir af minnihluta bæjarstjórnar
Einn áheyrnarfulltrúi tilnefndur af stjórn UMFG
Með nefndinni starfi sviðsstjóri frístunda- og menningarsvið, forstöðumaður íþróttamannvirkja og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Kjörnir fulltrúar fái greitt fyrir hvern fund í samræmi við nefndalaun Grindavíkurbæjar. Heildarfjárheimild nefndarinnar verði 2,5 milljónir kr.
Bæjarráð samþykkir tillöguna samhljóða og munu tilnefningar fara fram á næsta fundi.2. Rekstur Leikskólans Lautar
Fræðslunefnd leggur til að sveitarfélagið kanni grundvöll þess að semja við einkaðila um rekstur Leikskólans Lautar. Nefndin leggur til að sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs verði falið að boða starfsfólk og foreldra í Leikskólanum Laut til kynningarfundar eins fljótt og kostur er. Í kjölfarið verði lögð fyrir viðhorfskönnun starfsfólks og foreldra sem höfð verður til hliðsjónar varðandi framhald málsins.
Nefndin leggur áherslu á að eingöngu er um upplýsingaöflun að ræða til þess að taka ákvörðun á síðari stigum um það hvort Grindavíkurbær haldi áfram rekstri Leikskólans Lautar eða semji við einkaaðila um rekstur skólans.
Bæjarráð samþykkir tillöguna samhljóða.3. Lóðarleigusamningur á iðnaðarsvæði i5
Tillaga lögð fram, ásamt drögum að samkomulagi
Bæjarstjóri lagði fram tillögu að úrlausn málsins. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.
4. Lóðarleigusamningar landeigendafélags Járngerðarstaða- og Hópstorfu
Stjórn landeigendafélagsins hefur lokið samningsgerð við Bláa Lónið. Ég hef litið svo á að ég hafi umboð til að ganga frá þessu í stjórn. Hinsvegar vill lögmaðurinn að bæjarráð staðfesti svo það verði ekki nökrar í þinglýsingu. Leigan er að hækka úr rúmlega 11 milljónum í heildina, í rúmlega 19 milljónir.
Lóðarleigusamningar landeigendafélags Járngerðarstaða- og Hópstorfu við Bláa Lónið og tengd félög lagðir fram til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir samningana fyrir sitt leyti.5. Beiðni um nýtt stöðugildi í Grunnskóla Grindavíkur
Beiðni skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur um tímabundna ráðningu í starf verkefnisstjóra lögð fram.
Bæjarráð samþykkir beiðnina og vísar fjármögnun til fjárhagsáætlunar 2015.6. Beiðni um aukið stöðugildi í íþróttamiðstöð
Beiðni forstöðumanns íþróttamiðstöðvar Grindavíkur um ráðningu í nýtt stöðugildi lögð fram.
Bæjarráð samþykkir beiðnina og vísar fjármögnun til fjárhagsáætlunar 2015.7. Ósk um niðurfellingu á leigu vegna lokahófs Knattspyrnudeildar 2014
Knattspyrnudeild UMFG óskar niðurfellingu á leigu vegna lokahófs knattspyrnudeildar 2014.
Formaður bæjarráðs leggur til að beiðni knattspyrnudeildar verði samþykkt.
Tillagan er felld með tveimur atkvæðum gegn einu.
Forseti bæjarstjórnar leggur til að fylgt verði fordæmi síðustu ára um 50% afslátt af leigu.
Tillagan er samþykkt tveimur atkvæðum. Einn situr hjá.
Bæjarráð felur frístunda- og menningarnefnd að koma með tillögu að stuðningi Grindavíkurbæjar við deildir UMFG vegna afnota af íþróttahúsinu vegna viðburða.8. Tjaldsvæði - útboðsgögn
okkur hefur borist fyrirspurn um hvort Grindavíkurbær hafi áhuga á að koma tjaldsvæðinu í einkarekstur og jafnvel heimila frekari uppbyggingu á svæðinu, svo sem með smáhýsum. Í ljósi þess legg ég útboðsgögn frá 2013 fram að nýju og óska eftir að tekin verði afstaða til þess hvort við eigum að gera aðra tilraun við útboð.
Bæjarstjóri leggur til að Grindavíkurbær bjóði út að nýju rekstur tjaldsvæðisins. Í lok árs var auglýst 2012 var reksturinn boðinn út og barst eitt tilboð, sem var hafnað.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útbúa útboðsgögn og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.9. Rafrænir reikningar, móttaka og sending
Frá og með 1. janúar 2015 er krafa frá ríki að allir reikningar til ríkis og stofnana verði rafænir
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs leggur fram tilkynningu frá Fjársýslunni til birgja ríkisstofnana vegna rafrænna reikninga. Tilkynningin hefur í för með sér að gera þarf breytingar á bókhaldskerfi bæjarins. Áætlaður kostnaður við þær breytingar er um 675.000 kr.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að gera nauðsynlegar breytingar og leggur til við bæjarstjórn að fjárheimild til kaupa hugbúnaði bæjarskrifstofu verði hækkuð um 675.000 kr. á árinu 2015.10. Ósk um greiðslu styrks frá 2013
Slysavarnardeildin Þórkatla óskar eftir að fá greiddan styrk frá árinu 2013 sem ekki var vitjað á þeim tíma.
Bæjarráð samþykkir beiðnina.11. Fjárhagsáætlanir sameiginlega rekinna stofnanna á Suðurnesjum 2015
Fjárhagsáætlanir sameiginlega rekinna stofnanna á Suðurnesjum 2015 lagðar fram.
Heildarframlög Grindavíkurbæjar til verkefnanna eru áætluð 47.441.000 kr. á árinu 2015.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála-og stjórnsýslusviðs að gera ráð fyrir þeim útgjöldum í fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar fyrir árið 2015.12. Ágóðahlutagreiðsla 2014.
Eignarhaldsfélag Brunabótafélags Íslands tilkynnir að hlutdeild Grindavíkurbæjar í Sameignarsjóði EBÍ sé 2,305% og að ágóðahlutagreiðsla ársins sé 1.152.500 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 1.152.500 kr. sem komi til hækkunar á handbæru fé.