Bæjarráð Grindavíkur - 1343. fundur
- 04.03.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1343
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Formaður leitar afbrigða frá dagskrá til að bæta á dagskrá fundarboð á Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. vegna ársins 2013. Málsnúmer 1403020.
Samþykkt að taka á dagskrá undir dagskrárlið 11.
1. Endurskoðun jafnréttisáætlunar Grindavíkurbæjar
Framkvæmdaáætlunin var kláruð á fundi félagsmálanefndar hinn 27.02.2014. Reynt að dreifa framkvæmdum á gildistíma áætlunarinnar.
Tillaga félagsmálanefndar að endurskoðaðri jafnréttisáætlun Grindavíkurbæjar lögð fram ásamt framkvæmdaáætlun.
Bæjarráð þakkar félagsmálanefnd fyrir vel unnin störf og vísar tillögunni til umsagnar nefnda og stofnanna Grindavíkurbæjar. Umsagnarfrestur er til 31. mars. Tillagan skal jafnframt birt á vef Grindavíkurbæjar þar sem kallað er eftir ábendingum og athugasemdum íbúa.2. Reglur um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis hjá Grindavíkurbæ
Athygli vakin á nýmæli í 8. gr. um tryggingafé. Orðalagið tekið beint úr 4. tl. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga sem ber að skoða í samhengi við meginreglu 2. gr. húsaleigulaga.
Tillaga að reglum um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis hjá Grindavíkurbæ lögð fram að nýju eftir yfirferð félagsmálanefndar.
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.3. Greiðsla nefndarlauna til áheyrnarfulltrúa í fræðslu-og uppeldisnefnd.
Bréf Félags grunnskólakennara lagt fram þar sem farið er fram á að áheyrnarfulltrúar úr hópi kennara fái greidd nefndarlaun á fundum fræðslunefndar. Félagið telur að á grundvelli 1. málsliðar 51. gr. sveitarstjórnarlaga eigi þeir að fá greitt þar sem þeir séu í raun kjörnir fulltrúar.
Bæjarráð vekur athygli á að samkvæmt 51. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 er sveitarfélögum heimilt, en ekki skylt að greiða áheyrnarfulltrúum nefndarlaun. Kjörnir fulltrúar eru þeir sem kjörnir eru í nefndir af bæjarstjórn, í samræmi við Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að við vinnslu fjárhagsáætlunar ársins 2015 verði tekin ákvörðun um hvort greidd verði nefndarlaun fyrir áheyrnarfulltrúa á því ári.4. Aðalfundur Eignarhaldsfélag Suðurnesja hf. 2014
Fundarboð Aðalfundar Eignarhaldsfélag Suðurnesja hf. 2014 lagt fram.
5. Beiðni um umsögn frá Allherjar- og menntamálanefnd Alþingis um tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi, 277. mál.
Lagt fram.
6. Beiðni um umsögn frá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis um tillögu til þingsályktunar um kaup ríkisins á Grímstöðum á Fjöllum, 276. mál.
Lagt fram.
7. Lóðarleigusamningur á iðnaðarsvæði i5
Tillaga fjármálaráðuneytisins að lóðarleigusamningi um 6 ha lóð á i5
Tillaga fjármálaráðuneytisins að lóðarleigusamningi um 6 ha lóð á iðnaðarsvæði i5 samkvæmt aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030 lögð fram. Ríkið er eigandi landsins. Í samningnum er gerð tillaga um að greitt verði byggingaréttargjald og hærri lóðarleiga til landeiganda en tíðkast í Grindavík.
Bæjarráð þekkir engin fordæmi þess að greitt hafi verið byggingaréttargjald á iðnaðarsvæðum á Suðurnesjum. Ríkið hefur heldur ekki getað vísað til fordæmis um slíka gjaldtöku á landi í eigu ríkisins annarsstaðar á Íslandi. Ríkið innheimtir t.a.m. ekki byggingaréttargjald af landi sínu á Ásbrú. Að mati bæjarráðs Grindavíkur standa óhóflegrar kröfur ríkisins sem landeiganda um byggingarétt og lóðarleigu í vegi fyrir því að atvinnutækifæri byggist upp í Grindavík.8. Meðferð söluhagnaðar af hlutabréfum í HS veitum
Bæjarstjórn fól bæjarráði á fundi sínum þann 17. desember að meta hvort stofna skuli sérstakan sjóð um fjármunina sem fást úr sölunni á hlutafénu í HS veitum.
Tillaga fulltrúa D-lista.
Ég legg til að söluandvirðið sem fékkst við sölu á hlut Grindvíkurbæjar í HS Veitum að upphæð kr 46.488.000 að frádregnum fjármangstekjuskatti verði lagt í sjóð, er varið verði til uppbyggingar í þágu eldri borgara í Grindavík. Þetta fjármagn getur verið upphafið að t.d. stækkun á félagasaðstöðu eða frekari uppbyggingu leiguíbúða.
Fulltrúi D- lista.
Tillögunni er hafnað með þremur atkvæðum.
Fulltrúar B-, G- og S-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúar B-, G- og S-lista telja ekki rétt að stofna sjóð um lögbundin verkefni bæjarfélagsins enda ber bæjarfélagið ákveðnar skyldur gagnvart málefnum eldri borgara. Á bæjarstjórnarfundi 29. janúar var samþykkt að skipa nefnd um búsetumál eldri borgara og vonir standa til að úr þeirri nefnd komi tillögur er bæjarfulltrúar geta sameinast um að framfylgja.9. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
Farið yfir kostnaðaráætlun og raunkostnað
Minnisblað sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs með kostnaðaráætlun og raunkostnað við verkefnið eins og það stendur
lagt fram.10. Uppgræðsla í beitarhólfi Grindvíkinga í Krýsuvík
Beiðni Landgræðslu ríkisins um styrk til uppgræðslu í landi Krýsuvíkur lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að veita 100.000 kr. styrk til verkefnsins sem færist af lið bæjarráðs.11. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. vegna ársins 2013
Fundarboð Aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. vegna ársins 2013 lagt fram, auk þess sem kallað er eftir framboðum til stjórnar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum.