Bæjarráð Grindavíkur - 1341. fundur
- 04.02.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1341
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Hilmar E Helgason2. varamaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
1. Öldungaráð á Suðurnesjum
Fulltrúar félags eldri borgara koma á fundinn
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat undir þessum dagskrárlið.
Eyjólfur Eysteinsson, Jórunn Guðmundsdóttir, Guðlaugur Atlason, Hildur Harðardóttir og Erla Björg Delbertsdóttir fulltrúar félags eldri borgara á Suðurnesjum koma á fundinn og kynntu tillögu að stofnun Öldungaráðs á Suðurnesjum.
Tillagan hljóðar svo:
Félag eldri borgara á Suðurnesjum leggur til að komið verði á Öldungaráði Suðurnesja sem gæti hagsmuna eldri borgara á Suðurnesjum. Ráðið skal hafa víðtækt samráð við eldri borgara á Suðurnesjum og aðra sem láta málefni eldri borgara til sín taka. Öldungaráð verði skipað fulltrúum Félags eldri borgara á Suðurnesjum og sveitarstjórnarmönnum frá Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, hjúkrunarheimila á Suðurnesjum og annarra sem mál þetta varða og verði þeirra getið í nánar í væntanlegri stofnskrá Öldungaráðs Suðurnesja.
Bæjarráð vísar tillögunni til umsagnar í félagsmálanefnd.2. Vinnurammi kennara. Aðalmál
Fara yfir tillögu KÍ að úrlausn málsins
Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kynntu tillögu KÍ að útreikningum vinnuramma.
Kennarasambandið hefur reiknað út vinnuramma um þriðjung kennara. Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra að kalla eftir því að Kennarasambandið reikni sem fyrst út þá vinnuramma sem eftir standa.3. Búsetumál eldri borgara í Grindavík
Tilnefna í nefndina.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat undir þessum dagskrárlið.
Bæjarstjórn hefur falið bæjarráði að skipa 5 manna nefnd til að fara yfir búsetumál eldri borgara í Grindavík. Skal nefndin afla gagna til að meta þörf fyrir íbúðir og þjónustu fyrir eldri borgara í bænum til næstu 10 ára, með hliðsjón af íbúaþróun. Nefndin skal framkvæma könnun meðal eldri borgara um búsetuóskir þeirra. Nefndin skal skila bæjarstjórn þarfagreiningu og tillögum eigi síðar en 15. apríl 2014. Starfsmaður nefndarinnar er sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Bæjarráð óskar eftir tilnefningum frá eftirtöldum aðilum, en stefnt er að því að skipa í nefndina á næsta fundi bæjarráðs.
-Félagi eldri borgara í Grindavík
-Miðgarði heima-og búsetuþjónustu
-Félagsmálanefnd
-Meirihluta í bæjarstjórn
-Minnihluta í bæjarstjórn
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að kalla eftir tilnefningum og hefja nú þegar gagnaöflun fyrir nefndina.4. Fyrirkomulag dagforeldraþjónustu
Minnisblað leikskólafulltrúa lagt fram.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fylgdi eftir minnisblaði leikskólafulltrúa um fyrirkomulag dagforeldraþjónustu.
Félagsmálanefnd leggur til að heimilaðar verði niðurgreiðslur til foreldra barna með lögheimili í Grindavík sem kaupa þjónustu dagforeldra í öðrum sveitarfélögum. Það er mat nefndarinnar að slík tilvik verði fátíð og komi ekki til nema aðstæður foreldra krefjist þess. Útgjaldauki mun rúmast innan þeirra fjárheimilda sem nú þegar eru ákveðnar í niðurgreiðslu til dagforeldra.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
Nefndin leggur jafnframt til að gerðir verði þjónustusamningar við dagforeldra í Grindavík þar sem kveðið verði á um ábyrgð og skyldur dagforeldra annarsvegar og Grindavíkurbæjar hinsvegar, þjónustustig, stuðning Grindavíkurbæjar við þjónustuna og önnur þau atriði sem máli skipta.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur leikskólafulltrúa að gera tillögu að þjónustusamningi og leggja fyrir bæjarráð.5. Krafa um miskabætur
Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni um áfrýjunarleyfi
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat undir þessum dagskrárlið.
Bréf frá Hæstarétti Íslands dags. 29. janúar 2014 þar sem samþykkt er leyfi til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í málinu E-1687/2012: Páll Erlingsson gegn Grindavíkurbæ.
Bæjarráð felur lögmanni bæjarins að birta áfrýjunarstefnuna.
Fulltrúi D-lista leggur fram bókun.
Enn heldur meirihlutinn áfram með dómsmál á hendur starfsmönnum sínum.
Það fer að vera spurning, hvort ekki borgi sig að ráða lögfræðing í stöðu hjá bænum.
Fulltrúi D- lista.
Formaður tekur fundarhlé.
Bókun frá B-, G- og S-lista.
Fulltrúar B-, G-, og S-lista vilja ítreka fyrri bókun, þegar málið var tekið fyrir á bæjarráðsfundi 1336. Þá taldi bæjarráð dóminn það fordæmisgefandi fyrir vinnurétt á Íslandi að rétt væri að áfrýja. Eins og fram kemur líka í bókun meirihluta frá bæjarráðsfundi 1340, þá eru þau mál sem Grindavíkurbær hefur farið með fyrir dómstóla ólík. Dómsmálið, sem nú er til umræðu, varðandi einelti, var ólíkt öðrum er höfðu fallið hér á landi og þótti því mikilvægt að fá niðurstöðu um hver væri ábyrgð vinnuveitanda í slíkum málum. Málið sem fór fyrir félagsdóm snérist um mismunandi túlkun Starfsgreinasambandsins og ríkis og sveitarfélaga. Þar var framkvæmd sem hafði tíðkast hjá sveitarfélögum og ráðuneytum gagnrýnd og þótti öllum aðilum mikilvægt að fá niðurstöðu félagsdóms áður en kjarasamningsviðræður hæfust. Í þriðja málinu var Grindavíkurbær dæmdur til að greiða sömu upphæð og stefnanda hafði verið boðið. Bendum við því aftur á að ekkert sé óeðlilegt við þessi þrjú dómsmál. Mjög óeðlilegt sé að Grindavíkurbær fari í þá átt að greiða meira en því ber eingöngu til að forðast dómsmál.
Fulltrúar B-, G- og S-lista.6. Ávöxtun fjármuna Grindavíkurbæjar 2013
Ræða breytingar á ávöxtuninni og flutning hluta fjárins til Arionbanka
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir ávöxtun fjármuna Grindavíkurbæjar á árinu 2013.
Bæjarráð felur sviðssstjóra að leggja fram tillögu á næsta fundi bæjarráðs um ávöxtunarleiðir fyrir árið 2014.7. Hugbúnaðarleyfi
Vegna athugasemda frá Microsoft á Íslandi voru leyfismál skoðuð og niðurstaða er að Grindavíkurbær þarf að bæta leyfisskráningu.$line$Það þarf að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2014
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir skráningu hugbúnaðarleyfa Microsoft hjá Grindavíkurbæ.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að bæta leyfisskráninguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 800.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.8. Aðalfundur Samorku 21.febrúar 2014
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs hefur sótt þessa fundi undanfarin ár.
Fundarboð á aðalfund Samorku 21. febrúar 2014 lagt fram.
Bæjarráð felur Ármanni Halldórssyni sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að sækja fundinn fyrir hönd Grindavíkurbæjar.9. Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs 17. janúar 2014
Lagt fram.
10. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
Lagt fram.