Bæjarráð Grindavíkur - 1458. fundur
- 03.10.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1458
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Framtíðarsýn um aukna húsnæðisþörf leik- og grunnskóla: Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins óska eftir umræðu
Búið er að afla umsagnar stjórnenda í leik- og grunnskóla. FRÆ mun fjalla um málið og álykta á fundi 2. október kl. 17:00 og í framhaldi verður bókun FRÆ sett inn á vefgáttina.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.
Bæjarráð þakkar sviðsstjóra fyrir þá vinnu sem hann hefur lagt í málið.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.2. Endurskoðuð skólastefna Grindavíkurbæjar 2017
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.
Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að vinnuhópur um endurskoðun skólastefnunnar verði stofnaður þar sem fulltrúar frá skólastofnunum, fræðslunefnd, foreldrum og skólaskrifstofu verði í hópnum. Gera þarf ráð fyrir fjármagni í vinnu hópsins í fjárhagsáætlun 2018.
Bæjarráð samþykkir að stofnaður verði vinnuhópur um endurskoðun skólastefnunnar. Í hópnum verði fulltrúi frá fræðslunefnd, leikskólum, grunnskóla, tónlistarskóla, skólaskrifstofu og foreldraráði leikskólanna og frá foreldrafélagi grunnskólans.
Málinu er vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2018.3. Fjárhagsáætlun 2018-2021: Grindavíkurbær og stofnanir
Fjárhagsáætlunargögn sviðsstjóra og forstöðumanna lögð fram.
Fjárhagsáætlunargögn sviðsstjóra og forstöðumanna lögð fram.
4. Grindavíkurvegur: Vegrið og fláar
Lagt fram til upplýsinga
Áætlanir Vegagerðarinnar um framkvæmdir við Grindavíkurveg árið 2017 lagðar fram. Framkvæmdir snúa að auknu umferðaröryggi með auknum fláum, víravegriði á köflum og að fjarlægja grjót í vegköntum.
5. Umferðaröryggi á Grindavíkurvegi: Samráðsfundir
Samráðshópur um bættan Grindavíkurveg fundaði nýlega um málið.
Fundargerð Samráðshóps um bættan Grindavíkurveg lögð fram.
Bæjarráð tekur undir athugasemdir Samráðshóps um bættan Grindavíkurveg, um að ekki sé nóg að horfa eingöngu til umferðarþunga þegar kemur að því að forgangsraða umbótum vega. Þótt umferðarþungi kunni að vera meiri á öðrum vegum þá er slysatíðni á Grindavíkurvegi veruleg. Vegurinn er auk þess með mjög varasama kafla þar sem auðveldlega myndast hálka án fyrirvara yfir vetrartímann.
Reykjanesið er orðið mjög stórt atvinnusvæði sem fer ört vaxandi. Má þar nefna uppbyggingu við Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Bláa lónið sem nemur mörgum milljörðum króna. Miklir þungaflutningar fara auk þess um veginn, annars vegar flutningur sjávarafurða og hins vegar miklir fólksflutningar með rútum sem leið eiga í Bláa lónið. Mikið er um að ungt fólk fari um veginn til að sækja skóla, bæði í Reykjanesbæ og til höfuðborgarsvæðisins. Auk þess er mikil aukning á umferð erlendra ferðamanna á bílaleigubílum. Umferð um Grindavíkurveg er því bæði fjölbreytt og flókin.
Bæjarráð tekur auk þess undir hugmyndir Samráðshópsins um að hefja strax undirbúning samkvæmt tillögu 2 frá Vegagerðinni. Hafist verði handa við hönnun og skipulag svo það verði klárt þegar vegurinn fer inn á Samgönguáætlun. Það er mat bæjarráðs Grindavíkur að m.v. fjölgun umferðar á veginum þoli framkvæmdin enga bið. Þá tekur bæjarráð undir með hópnum, um að framkvæmdum á 2 + 1 vegi með aðskildum akstursstefnum, sem kostar m.v. útreikning Vegagerðarinnar, 1400 milljónir, verði áfangaskipt og jafnvel tekin í tveimur eða þremur áföngum. Hættulegustu kaflarnir verði teknir fyrst.6. Breyting á lögreglusamþykkt: Ályktun um gistingar á sérmerktum svæðum
Erindi frá bæjarstjóra Reykjanesbæjar þar sem viðruð er sú hugmynd að skipa sameiginlegan starfshóp allra sveitarfélaga á Suðurnesjum til þess að vinna lögreglusamþykkt fyrir svæðið í heild
Erindi frá bæjarstjóra Reykjanesbæjar lagt fram. Þar er viðruð sú hugmynd að skipa sameiginlegan starfshóp allra sveitarfélaga á Suðurnesjum til þess að vinna lögreglusamþykkt fyrir svæðið í heild.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndina og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.7. Reykjanes Geopark: Afstaða sveitarfélaga til mögulegrar gjaldtöku á áningarstöðum fyrir ferðamenn
Óskað er eftir að niðurstaða sveitarstjórna á Suðurnesjum liggi fyrir í síðasta lagi 1. desember nk.
Bréf, dags. 28. september 2017, frá Reykjanes Geopark lagt fram.
Bæjarráð lítur svo á að gjaldtaka á áningarstöðum komi til álita ef ekki er hægt að fjármagna uppbyggingu og viðhald ferðamannastaða með öðru móti eða takmarki aðra fjármögnunarmöguleika.8. Neytendasamtökin: Beiðni um styrk
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.