Bæjarráð Grindavíkur - 1447. fundur
- 06.06.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1447
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Sustainable Feed: Viljayfirlýsing
Að ósk bæjarstjórnar mætir Ingólfur Arnarson á fundinn, en hann er forsvarsmaður félags um stofnun eldisbúgarðs og mun hann kynna verkefnið.
Ingólfur Arnarson, forsvarsmaður félags um stofnun eldisbúgarðs, mætti á fundinn og kynnti hann verkefnið.
Bæjarráð samþykkir að framlengja viljayfirlýsinguna um ár.2. Stofnun öldungaráðs: Erindi frá Félagi eldri borgara í Grindavík
Á 1445. fundi bæjarráðs var samþykkt að óska eftir fundi með stjórn FebG. Stjórnin hefur þegið boð um að koma á fund bæjarráðs.
Fulltrúar úr stjórn félags eldri borgara í Grindavík mættu á fundinn og kynntu hugmyndir sínar um stofnun öldungaráðs.
Bæjarráð samþykkir að stofna öldungaráð í Grindavík og felur bæjarstjóra, fulltrúa frá félagi eldri borgara og forstöðumanni Miðgarðs að vinna málið áfram.3. Netkerfi Grindavíkurbæjar
Skýrsla um netkerfi Grindavíkurbæjar lögð fram.$line$$line$Kerfisstjóri Grindavíkurbæjar mætti á fundinn og kynnti málið.
Kerfisstjóri Grindavíkurbæjar mætti á fundinn og kynnti málið.
Skýrsla um netkerfi Grindavíkurbæjar lögð fram.4. Daggæsla í heimahúsi: Tillögur um eflingu þjónustu
Minnisblað og frumkostnaðaráætlanir frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
Minnisblað og frumkostnaðaráætlanir frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að fara leið 3 sem felur í sér að nýta útistofu við Ásabraut undir daggæslu. Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að vinna málið áfram.5. Refa- og minkaveiðar í Grindavík
Samkomulag um refa- og minkaveiðar í Grindavík lagt fram.
Samkomulag um refa- og minkaveiðar í Grindavík lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að segja upp samningi dags. 10.júní 2005. Bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að útbúa reglur um refa- og minkaveiðar í Grindavík og leggja fyrir bæjarráð til staðfestingar.6. Umsókn vegna hjólareiðamóts: Sjóarinn síkáti 2017
Umsókn Hjólreiðanefndar fyrir hjólreiðamót 11. júní 2017; sjómannadagshelgi
Bæjarráð samþykkir erindið en vekur athygli á að mikilvægt er að hjólreiðamótið hindri ekki aðgengi að verslun og þjónustu á svæðinu. Einnig er skilyrði að fyllsta öryggis sé gætt gagnvart gangandi vegfarendum á hátíðarsvæðinu.
7. Vilhjálmur Lárusson: Umsókn um stöðuleyfi
Sótt er um stöðuleyfi fyrir færanlegan matarvagn.
Vilhjálmur Lárusson sækir um stöðuleyfi fyrir færanlegan matarvagn.
Bæjarráð samþykkir að veita stöðuleyfið og felur byggingafulltrúa að finna ákjósanlegan stað í samráði við umsækjanda.8. Fundargerðir: Heklan 2017
Fundargerð 57. fundar til kynningar
Fundargerð 57. fundar, dags. 26. maí 2017, er lögð fram.