Bæjarráð Grindavíkur - 1408. fundur
- 03.05.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1408
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Endurnýjun götumyndar: Arnar-, Borgar og Staðarhraun.
Hönnunargögn, verklýsing og niðurstöður verðkönnunar lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við Grindverk ehf. um endurnýjun götumyndar Arnar-, Borgar- og Staðarhrauns.2. Fjölþætt heilsuefling: leið að farsælli öldrun
Svör við spurningum
Framhald frá fundi 1.405. Svör við ýmsum spurningum lagðar fram.
Bæjarráð er jákvætt fyrir því að taka þátt í verkefninu gegn því að þátttaka og fjármögnun annarra sveitarfélaga verði tryggð og að ríkið taki þátt með að minnsta kosti 60% af fjármagninu. Fjárhagslegur ávinningur verður helst í verkefnum sem eru á ábyrgð ríkisins, svo sem í þjónustu hjúkrunarheimila og sjúkrahúsa.3. Forsetakosningar 2016: framkvæmd kosninga
Framhald frá fundi 1407.
Bæjarstjóri upplýsti um samskipti sín við sýslumann um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu í Grindavík. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla verður á sýsluskrifstofunni í Grindavík á skrifstofutíma alla virka daga frá 2. maí til 19. júní frá kl. 8:30 til kl. 13:00 og 20.-24. júní frá kl. 8:30 til 18:00.
Í ljósi þess hve þjónusta sýslumanns í Grindavík er góð, fellur bæjarráð frá því að sækja um þátttöku í tilraunaverkefni um þátttöku Grindavíkurbæjar í utankjörfundaratkvæðagreiðslu.4. Ungmennaráð: Áherslur 2016
Áherslur ungmennaráðs, sem kynntar voru á bæjarstjórnarfundi í apríl, lagðar fram og ræddar.
Bæjarráð þiggur boð um að koma á næsta fund ungmennaráðs og ræða tillögurnar.5. Vinabæjarheimsókn: Saltfiskhátíð í Ilhavo í Portugal
Boð um að taka þátt í saltfiskhátíð í Ilhavo í Portugal 17-21. ágúst.
Bæjarstjóri kynnti boð Ilhavo, vinabæjar Grindavíkur í Portúgal, um að taka þátt í saltfiskhátíð í Ilhavo í Portugal 17-21. ágúst.
Bæjarráð þiggur boðið og felur bæjarstjóra að hefja undirbúning og jafnframt að bjóða fulltrúa Ilhavo að taka þátt í Sjóaranum síkáta.6. Styrkbeiðni: knattspyrnuleikur til styrktar krabbameinsrannsóknum
Vignir Helgason óskar eftir 50.000 kr. styrk til kaupa á búningum fyrir styrktarleik sem fram fer í Glasgow til minningar um Tommy Burns, fyrrum leikmann Celtic.
Bæjarráð samþykkir að veita 50.000 kr. styrk sem verður tekinn af styrktarlið bæjarráðs.7. Bæjarskrifstofur Víkurbraut 62: Stækkun og breytingar frh
Undirritaður verksamningur verður lagður fram til staðfestingar
Undirritaður verksamningur er lagður fram til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir samninginn.