Bæjarráð Grindavíkur - 1395. fundur
- 03.11.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1395
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Ungmennaráð: Breyting á samþykktum
Þorsteinn fylgir málinu eftir á fundinum
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kynnti málið.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.2. Félag eldri borgara í Grindavík: Samstarfssamningur 2016-2018
Þorsteinn fylgir málinu eftir á fundinum
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kynnti samninginn.
Bæjarráð vísar samningum til afgreiðslu bæjarstjórnar.3. Starfsmannamál: Reglur um árshátíð o.fl.
Framhald frá fundi 1393.
Athugasemdir og ábendingar slökkviliðsmanna lagðar fram.
Bæjarstjóra falið að gera breytingar á tillögunni og leggja fyrir bæjarráð til afgreiðslu.4. Starfsmannastefna Grindavíkurbæjar: breytingatillaga vegna heilsustyrkja
Framhald frá fundi 1383
Framhald frá fundi 1383.
Bæjarstjóri leggur fram breytingatillögu við kafla um heilsueflingu í Starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar. Markmið breytinganna er að koma betur til móts við mismunandi heilsueflingu starfsmanna. Jafnframt er gerð tillaga um nýjan kafla um samgöngusamninga.
Afgreiðslu frestað.5. Tillaga um stefnumótun á þjónustusvæði Suðurnesja um málefni fatlaðs fólks - Framhaldsmál 2015
Bréf um höfnun á beiðni sveitarfélaga á Reykjanesi um undanþágu frá íbúajöldamörkum þjónustusvæða lagt fram.
Úrskurður ráðherra vegna beiðni sveitarfélaganna á Suðunesjum um undanþágu frá íbúafjöldamörkum þjónustusvæða lagður fram.
Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með að undanþágubeiðni frá íbúafjöldatakmörkunum skuli hafnað og úrskurðað um að sveitarfélögin á Suðurnesjum skuli sameiginlega mynda eitt þjónustusvæði. Ljóst er að sveitarfélögin á Suðurnesjum þurfa að vinna sameiginlega að lausn málsins og fá til þess leiðsögn velferðarráðuneytisins.6. Fjáreigendafélag Grindavíkur: Ósk um styrk til uppgræðslu í Krýsuvíkurhólfi
Höfum lagt 50.000 kr í þetta undanfarin ár. Finnst rétt að við afgreiðsluna verði ítrekað að fjáreigendur tryggi að ekki verið ofbeit í hólfinu, í samstarfi við Fjallskilanefnd
Fjáreigendafélag Grindavíkur óskar eftir styrk til uppgræðslu í Krýsuvíkurhólfi vorið 2016.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði 50.000 kr. styrkur á árinu 2016. Bæjarráð leggur áherslu á að fjáreigendur tryggi í samstarfi við Fjallskilanefnd að ekki verið ofbeit í hólfinu.