Bæjarráð Grindavíkur - 1371. fundur
- 03.02.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1371
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Formaður óskar eftir því að bæta máli á dagskrá með afbrigðum.
1502018 Sala félagslegra íbúða í eigu Grindavíkurbæjar.
Samþykkt samhljóða.
1. Dagforeldrar: Gjaldskrá fyrir 18 mánaða og eldri
Framhald frá fundi 1367.
Minnisblað sviðsstjóra félagsþjónustu-og fræðslusviðs og leikskólafulltrúa varðandi gjaldskrá dagforeldraþjónustu fyrir eldri en 18 mánaða lagt fram að nýju með breytingatillögu fræðslunefndar.
Bæjarráð samþykkir að gera breytingu á gjaldskrá dagforeldraþjónustu, þannig að foreldrar barna í dagforeldraþjónustu greiði sama gjald og foreldrar barna á leikskólum frá og með 18 mánaða aldri, að því gefnu að börnin séu á biðlista á leikskóla. Bæjarstjóra falið að útfæra tillöguna nánar með það fyrir augum að gildistaka verði 1. mars næstkomandi.2. Aukið stöðugildi: Stuðningur á deild vegna fötlunar
Félags-og skólaþjónusta Grindavíkurbæjar óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015 til að ráða stuðningsfulltrúa í hlutastarf vegna fatlaðs barns á leikskóla.
Bæjarráð samþykkir að veita heimild til ráðningar í 50% starfshlutfall stuðningsfulltrúa þar til frumgreining sálfræðings liggur fyrir og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2015.3. Skólaþróun í Grindavík
Fræðslunefnd leggur til að reglum um úthlutun úr endurmenntunarsjóði skv. c-lið 16. gr. (18. - 25. gr.) verði breytt á þann veg að þær taki einnig til starfsþróunar starfsmanna á vettvangi. Nefndin leggur áherslu á að forstöðumenn kynnir reglurnar fyrir sínum starfsmönnum og kallar eftir því frá stjórn Endurmenntunarsjóðs að auglýsa úthlutun og úthlutunarreglur í samræmi við 21. gr. reglnanna í apríl og september ár hvert.
Bæjarráð samþykkir tillögu fræðslunefndar og felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir.4. Frístundastarf Grindavíkurbæjar: Úttekt og stefnumótun
Uppfærð útgáfa: FRÍSTUNDASTEFNA GRINDAVÍKUR 2015-2020. Í samræmi við umræður á bæjarstjórnarfundi í desember hefur sviðsstjóri uppfært útgáfuna og breytt uppsetningunni. $line$- Frístundastefnan sjálf er fremst í skjalinu, hún er í 6 liðum og lýkur svo á framtíðarsýn málaflokksins.$line$- Í kjölfarið koma svo öll fylgigögnin sem liggja til grundvallar stefnumótunarinnar.$line$- 6. liður; "Aukin fagmennska í frístundastarfi", hefur aðallega verið breytt og uppfært. Þá hefur verið tekið út nýtt stöðugildi og bygging nýrrar félagsmiðstöðvar.
Uppfærð tillaga sviðsstjóra frístunda-og menningarsviðs að stefnumörkun í frístundamálum Grindavíkurbæjar lögð fram eftir umfjöllun í bæjarstjórn.
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar í frístunda- og menningarnefnd, og til kynningar hjá þeim aðilum sem komu að stefnumótunarvinnunni.5. Austurvegur 1: umsókn um byggingarleyfi áfangi 2
Minnisblað lagt fram vegna brunahönnunar
Minnisblað um brunavarnarmál tengd nýju íþróttamannvirki og Gula húsinu lagt fram.
Málinu frestað til næsta fundar.6. Íþróttamannvirki: Uppbygging tengibyggingar og íþróttasalar
Gera tillögu að breytingu á verkefni bygginganefndarinnar í kjölfar umræðu á bæjarstjórnarfundi
Bæjarstjórn vísaði málinu til frekari vinnslu í bæjarráði, og fól bæjarráði að endurskilgreina verkefnið og vísa því til nefndar um byggingu íþróttamannvirkja.
Minnisblað bæjarstjóra með tillögu að breyttu verklagi nefndarinnar lagt fram.
Bæjarráð vísar minnisblaðinu til bygginganefndarinnar.7. Kaupsamningur um spildu úr landi Húsatófta. Verðmat
Matsgjörð lögð fram
Matsgjörð óháðra matsmanna vegna 70,35 ha spildu úr landi Húsatófta í Grindavík, landnr. 221801 lögð fram.
Bæjarstjóri leggur til að Grindavíkurbær uni matsgjörðinni og honum falið að greiða kaupverð samkvæmt kaupsamningi.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.8. Umferðaröryggisáætlun 2014-2017
Bæjarráð leggur til við innanríkisráðherra að Vegagerðinni verði falið að setja upp lýsingu á gatnamótum Grindavíkurvegar og Norðurljósavegar hið fyrsta. Í samræmi við A lið greinar 1.1 í umferðaröryggisáætlun Grindavíkurbæjar.
Málið er á dagskrá að beiðni fulltrúa B-lista.
Bæjarráð leggur til við innanríkisráðherra að Vegagerðinni verði falið að setja upp lýsingu á gatnamótum Grindavíkurvegar og Norðurljósavegar hið fyrsta, í samræmi við A lið greinar 1.1 í umferðaröryggisáætlun Grindavíkurbæjar.9. Samband sveitarfélaga á suðurnesjum: Vetrarfundur.
Stjórn SSS upplýsir að árlegur vetrarfundur muni fara fram í mars næstkomandi og óskar eftir tillögum að málefnum á dagskrá fundarins.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar leggur til að á fundinum verði rætt um atvinnuþróunarmál á Suðurnesjum.10. Beiðni um umsögn: Umsókn Vavavaka ehf. um rekstrarleyfi veitingastaðar í flokki II að Hafnargötu 6
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum óskar eftir umsögn um umsókn Vavavaka ehf. kt. 701214-1020 um rekstrarleyfi, sbr. 11. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald til að reka veitingastað í flokki II undir heitinu Kanturinn, að Hafnargötu 6 í Grindavík.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.11. Beiðni um umsögn: Umsókn Pepp ehf. um breytingu á rekstrarleyfi úr flokki II í flokk III, að Hafnargötu 7a.
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum óskar eftir umsögn um umsókn Pepp ehf. kt. 591113-0890 um breytingu á rekstrarleyfi, sbr. 12. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Leyfishafi fékk útgefið rekstarleyfi til reksturs veitingastaðar í flokki II að Hafnargötu 6 í Grindavík þann 30. maí 2014. Leyfishafi óskar nú eftir að flytja starfsemina á Hafnargötu 7a í Grindavík og að breyta leyfinu úr flokki II í flokk III.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.12. Vinnuverndarnefnd: Fundargerðir og verkefni
Á síðasta fundi Vinnuverndarnefndar var eftirfarandi bókað:$line$"Hjartavæðum Grindavík$line$Starfsemi Grindavíkurbæjar gengur fyrst og fremst út á það að þjónusta fólk á öllum aldri hvort sem það tengist skólastofnunum, frístundum, menningu, atvinnulífi og fleira. Stefna Grindavíkurbæjar er að setja öryggið á oddinn þegar kemur að heilsu fólks, hvort sem um er að ræða starfsfólk eða þeir sem nýta sér þjónustu bæjarins. $line$Grindavíkurbær samþykktir að hjartastuðtæki verði komnar í allar stofnanir Grindavíkurbæjar í árslok 2020, í þessari röð: Miðgarður, Grunnskóli Grindavíkur við Ásabraut og Hópsskóla, Leikskólinn Laut, bæjarskrifstofur/skólaskrifstofa, Grindavíkurhöfn, þjónustumiðstöð og tjaldsvæðið.$line$? Grindavíkurbær bjóði starfsfólki sínu upp á námskeið í skyndihjálp meðhöndlun hjartastuðtækja með reglubundnum hætti. $line$? Fræðsla verði í Grunnskóla Grindavíkur um skyndihjálp fyrir nemendur, á hverju skólaári."
Vinnuverndarnefnd leggur til að Grindavíkurbær samþykkti að hjartastuðtæki verði komnar í allar stofnanir Grindavíkurbæjar í árslok 2020. Jafnframt að Grindavíkurbær bjóði starfsfólki sínu upp á námskeið í skyndihjálp meðhöndlun hjartastuðtækja með reglubundnum hætti og að fræðsla verði í Grunnskóla Grindavíkur um skyndihjálp fyrir nemendur, á hverju skólaári.
Bæjarráð felur Vinnuverndarnefnd að kostnaðarmeta tillöguna og koma henni á framfæri við gerð næstu fjárhagsáætlunar fyrir árin 2016- 2019.13. Sala félagslegra íbúða í eigu Grindavíkurbæjar
Ein íbúð var að losna. Samkvæmt reglunum ætti hún að fara í sölu. Félagsþjónustan metur stöðuna þannig að brýnna sé að halda henni í útleigu innan kerfisins.
Bæjarstjóri upplýsir að félagsleg íbúð standi laus. Samkvæmt reglum um sölu félagslegra íbúða ætti hún að fara í sölu. Félagsþjónustan óskar eftir heimild til að fresta sölu og úthluta henni að nýju.
Bæjarráð samþykkir beiðnina.