Bæjarráð Grindavíkur - 1336. fundur
- 03.12.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1336
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
1. Krafa um miskabætur
Dómur Héraðsdóms Reykjaness 13. nóvember 2013 í máli nr. E-1687/2012 lagður fram. Jóhannes Karl Sveinsson hrl kemur á fundinn og fylgir málinu eftir.
Dómur Héraðsdóms Reykjaness 13. nóvember 2013 í máli nr. E-1687/2012 lagður fram. Jóhannes Karl Sveinsson hrl. kom á fundinn og reifaði á dóminn.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat undir afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Bæjarráð telur dóminn það fordæmisgefandi fyrir vinnurétt á Íslandi að rétt sé að áfrýja, og felur bæjarstjóra að sækja um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar.
Fulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Nú þegar hefur kostnaður bæjarsjóðs við þetta mál þrefaldast frá því sem upphaflega hefði getað orðið.
Fulltrúar B-, G- og S-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Ljóst er að niðurstaða þessa dóms er fordæmisgefandi fyrir alla vinnuveitendur á Íslandi og getur það haft mikil áhrif á framtíðarkostnað vinnuveitenda í málum sem þessum sem og ábyrgð vinnuveitenda. Þykir því mikilvægt að áfrýja málinu og fá niðurstöðu Hæstaréttar svo enginn vafi leiki á um fordæmisgildi dómsins.2. Endurskoðuð skólastefna Grindavíkurbæjar 2013
Endurskoðuð skólastefna Grindavíkurbæjar lögð fram. Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs gerði grein fyrir stefnumótuninni.
Endurskoðun skólastefnu er hluti af þróunarverkefni skólaskrifstofu Grindavíkur og allra skóla í Grindavík við innleiðingu nýrrar aðalnámskrár í skólastarfið.
Fræðslunefnd hefur samþykkt stefnuna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.3. Ársuppgjör 2013, Grindavíkurbær og stofnanir
Yfirlýsing endurskoðenda um óhæði lögð fram.
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir því að vinna við ársuppgjör Grindavíkurbæjar og stofnana hans fyrir árið 2013 er hafin.
Yfirlýsing endurskoðenda um óhæði lögð fram.4. Beiðni um heimild til að leigja Kirkjukot út fyrir dagforeldraþjónustu
Bæjarstjóri gerir grein fyrir stöðu málsins
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins.
Unnið er að annarri lausn en að starfsemin verði í Kirkjukoti og verða því engar breytingar á samningi Grindavíkurbæjar við núverandi leigjendur í Kirkjukoti.5. Beiðni um umsögn frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um frumvarp til laga um náttúruvernd (brottfall laganna), 167. mál.
Lagt fram.
6. Útvistun umsjónar með tölvukerfum
Drög að samningi við Omnis
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs kynnti tillögu að sex mánaða samningi við Omnis ehf. um umsjón með tölvukerfum Grindavíkurbæjar. Áður en samningstíma lýkur mun fara fram mat á kostnaði og samstarfinu.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.7. Breyting á starfi upplýsinga- og þróunarfulltrúa
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs kynnti tillögu að breytingu á starfslýsingu upplýsinga- og þróunarfulltrúa. Breytingin felur í sér að aukin áhersla verður á skjalavörslu. Samhliða muni starfsheiti breytast í upplýsinga- og skjalafulltrúa.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur sviðsstjóra að auglýsa starfið laust til umsóknar.
Fulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúi D- lista telur að nú ætti bæjarráð frekar velta því fyrir sér að ráða starfsmann í hlutastarf til að sjá um uppýsingaflæði til bæjarbúa.
Fulltrúar B-, G- og S-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Samkvæmt lögum ber sveitarfélögum að tryggja að skjalastjórnun sé fullnægjandi og að gögnum sé skilað til Þjóðskjalasafns. Nýleg dæmi sýna að skjalastjórnun er ábótavant hjá Grindavíkurbæ. Mikil ánægja er með heimasíðu Grindavíkurbæjar, Járngerði og Þórkötlu, fréttablað starfsmanna bæjarins. Heimasíðan hefur náð þeim árangri að þær tilkynningar og fréttir sem þar birtast ná til flestra bæjarbúa og mikilvægt er að tryggja slíkt upplýsingaflæði áfram og takmarka ekki aðgengi íbúa að upplýsingum. Með því að gera starf upplýsingafulltrúa að hlutastarfi skapast hætta á afturför í upplýsingaflæði til íbúa ásamt því að skjalastjórnun verður áfram í ólestri í bæjarfélaginu.8. Starfsmat upplýsinga og þróunarfulltrúa
Nýtt starfsmat leiðir til hækkunar launa frá nóvember 2011 og því þarf að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2013.
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs kynnti niðurstöðu starfsmats Sambands íslenskra sveitarfélaga á starfi upplýsinga- og þróunarfulltrúa.
9. Breytingar á reglum NASDAQ OMX Iceland hf.
Lagt fram. Óverulegar breytingar á þeim kafla sem snúa að útgefendum skuldabréfa.
Lagt fram.
10. Nes-íþróttafélag fatlaðra óskar eftir styrk til rekstrar á árinu 2014
Nes-íþróttafélag fatlaðra óskar eftir styrk til rekstrar á árinu 2014.
Bæjarráð samþykkir að styrkja félagið af lið bæjarráðs um kr. 75.000.11. Nýtt svæði undir skreiðarhjalla við gamla jarðvegstippinn
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins og lagði fram tillögu að samkomulagi við Þurrkaðar fiskafurðir ehf.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna á grundvelli tillögunnar og leggja endanlegt samkomulag fyrir bæjarráð til samþykktar.
Fulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Meirihlutinn er hér að samþykkja tillögu að samningi, þar sem bærinn ætlar að útbúa á sinn kostnað plan undir skreiðarhjalla. Og án þess að vita hver kostnaðurinn við það er.
Fulltrúi D- lista er ekki andvígur að viðkomandi aðili fái að setja upp skreiðarhjalla á sinn kostnað.
Fulltrúi D- lista gerir athugasemd við að samningur þessi sé bundinn a.m.k til 10 ára. Það þýðir að bærinn geti ekki úthlutað þessu svæði til frekari atvinnuuppbyggingar fyrr en eftir þessi 10 ár.
Fulltrúar B-,G- og S-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Grófleg kostnaðaráætlun liggur fyrir ásamt því að umrætt iðnaðarsvæði er 100 ha og er nú verið að úthluta 0,7 ha. Ætti því að vera nægt svæði á umræddum iðnaðarreit ásamt því að Grindavíkurbær hefur yfir að ráða fleiri iðnaðarsvæðum. Er því mjög ólíklegt að bæjarfélagið verði uppiskroppa með iðnaðarsvæði á næstu 10-15 árum.12. Ósk um leiðréttingu á skráningu landspildum innan Húsatófta í Grindavík
Héraðsdómur Reykjaness tilkynnir að Ríkissjóður Íslands hefur farið þess á leit við dóminn að dómkvaddir verði tveir matsmenn til að framkvæma skoðun og mat á skráningum landspilda innan Húsatófta í Grindavík.
13. Ljósleiðari Emerald Network í landi Grindavíkur
Lagnaleið
Bæjarstjóri kynnir tilboð í gerð minnisblaðs með mati á kostum og göllum þess að Grindavíkurbær leggi og eigi ljósleiðarastreng frá landtökustað sæstengs í Mölvík og til bæjarins.
Jafnframt kynnti hann tillögu Emerald Network að lagnaleið ljósleiðarans.14. Íbúafundur um fjárhagsáætlun 2014-2017
fara yfir hugmyndir og tillögur sem komu fram á fundinum.
Umræða um íbúafund um fjárhagsáætlun 2014-2017 sem haldinn var í Hópsskóla þann 11. nóvember síðastliðinn.
Á fundinum komu fram nokkrar tillögur og ábendingar sem bæjarráð hefur til umfjöllunar.
Nú þegar hefur verið brugðist við góðri ábendingu um að lýsa upp styttuna Von í Sjómannagarðinum. Auk þess eru bundnar vonir við að þær breytingar sem samþykktar hafa verið á heimilis- og búsetuþjónustu muni efla til muna þjónustu við eldri borgara.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um biðlista og eftirspurn eftir íbúðum í Víðihlíð og felur félagsmálanefnd að endurskoða úthlutunarreglur.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með þátttöku íbúa á fundinum.