Bæjarráð Grindavíkur - 1326. fundur
- 03.09.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1326
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Formaður leitaði afbrigða frá dagskrá til að bæta við máli á dagskrá.
1301008- Kaup á búnaði í íþróttahús
Samþykkt.
1. Beiðni um rekstrarstyrk til körfuknattleiksdeildar UMFG
Fulltrúa kknd UMFG koma á fundinn og fylgja málinu eftir. Ég hef beðið Kristinn að vera tilbúinn með upplýsingar um fyrirkomulagið í Garðabæ.
Jón Gauti Dagbjartsson fulltrúi Körfuknattleiksdeildar UMFG kom á fundinn og fylgdi eftir erindi körfuknattleiksdeildar UMFG um rekstrarstyrk fyrir meistaraflokka.
Kristinn Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat undir afgreiðslu þessa liðar.
Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni körfuknattleiksdeildarinnar.
Bæjarráð beinir því til frístunda- og menningarnefndar að undirbúa tillögu um stuðning Grindavíkurbæjar við innra starf og afreksstarf UMFG, þannig að tillaga liggi fyrir bæjarstjórnarfundi í nóvember. Í því ljósi verði litið til umræðu og niðurstöðu frá stefnumótunarfundi um íþróttamál sem haldinn var 8. apríl 2013.2. Tillögur að breytingum á rekstri skólasels frá og með hausti 2013
Tillaga frá fræðslunefnd síðan í mars sem aldrei hefur komið til umfjöllunar bæjarráðs. Halldóra og Nökkvi fylgja málinu eftir
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri komu á fundinn og fylgdu erindinu eftir.
Fræðslunefnd leggur til að tillagan verði samþykkt.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að auglýsa breytinguna og leggja fyrir bæjarstjórn tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2013.3. 6 mánaða rekstraryfirlit 2013
Jón Þórisson lagði fram yfirlit yfir rekstur bæjarsjóðs Grindavíkurbæjar og stofnana hans fyrstu 6 mánuði ársins 2013.
4. Heilbrigðis- og öldrunarmál á Suðurnesjum. Skýrsla unnin fyrir Sv. Garð og Sandgerðisbæ
Bæjarráð Grindavíkurbæjar þakkar Sveitarfélaginu Garði og Sandgerðisbæ fyrir vel unna og athyglisverða skýrslu um heilbrigðis- og öldrunarmál á Suðurnesjum. Niðurstöður skýrslunnar eru sláandi og draga enn og aftur fram hvað framlög ríkisins til opinberrar þjónustu á Suðurnesjum eru mikið lægri en tíðkast í öðrum landshlutum.
Í skýrslunni kemur fram að framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra á árunum 2000-2010 voru langlægst til Suðurnesja.
Áberandi er hve misjafnt hjúkrunarrými skiptast á milli landshluta og er erfitt að átta sig á eftir hvaða reglu er farið við úthlutanir á hjúkrunarrýmum. Ef fjöldi hjúkrunarrýma á hverja 1.000 íbúa í hverju heilbrigðisumdæmi er skoðaður hallar verulega á Suðurnesin.
Nú er unnið að nauðsynlegri fjölgun hjúkrunarrýma á svæðinu og er Grindavíkurbær í viðræðum við velferðarráðuneytið um yfirtöku á rekstri hjúkrunarheimilins Víðihlíðar og heimahjúkrun. Sveitarfélagið Garður og Sandgerðisbær hafa jafnframt óskað eftir því að hjúkrunarheimilið Garðvangur verði rekið áfram með færri rými en áður.
Í ljósi þess að stefna félags- og tryggingamálaráðuneytisins er sú að tryggja öldruðum sem þess þurfa aðgang að hjúkrunarheimili í sinni heimabyggð, hlýtur það að vera réttmæt krafa að grunnur daggjalda hjúkrunarheimila verði endurskoðaður þannig að minni hjúkrunarheimili fái hærra daggjald en þau stærri.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar hvetur til samstöðu meðal sveitarstjórnarmanna um að berjast fyrir bættum hlut Suðurnesjamanna í þessum málaflokki.5. Innri leiga 2013
Endurreiknuð leiga ársins 2013 vegna fjárfestingar á árinu 2012. Samþykkja þarf viðauka við fjárhagsáætlun.
Endurreiknuð innri leiga ársins 2013 vegna fjárfestinga og verðbóta á árinu 2012 lögð fram.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð 9.503.896 kr. Þeim útgjaldaauka verði mætt með hækkun tekna Eignasjóðs vegna innri leigu að fjárhæð 9.503.896 kr.6. Ljósleiðari Emerald Network í landi Grindavíkur
Bæjarráð frestar afgreiðslu þar til nánari upplýsingar liggja fyrir um kosti og galla við þess að Grindavíkurbær fjárfesti í lagningu lagningu ljósleiðara úr Mölvík í Grindavík.
7. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
Fundargerðir verkfunda 8 -10 lagðar fram
Fundargerðir verkfunda 8 -10 lagðar fram.
8. Ósk um umsögn um frumvarp til breytinga á skipulagslögum
Ósk umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um umsögn um frumvarp til breytinga á skipulagslögum lögð fram.
Jafnframt er lögð fram umsögn lögfræðisviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarpið.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir umfram það sem kemur fram í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.9. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Tillagan er lögð fram til umræðu.
Ákveðið að á næsta fundi bæjarráðs verði farið yfir fyrstu fjóra kafla tillögunnar.10. Tillaga bæjarstjórnar Reykjanesbæjar varðandi sorphirðugjald.
Tillaga bæjarstjórnar Reykjanesbæjar lögð fram um að frá og með næstu áramótum verði hætt að innheimta gjöld af einstaklingum sem koma með úrgang á gámaplön Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.
Með vísan til svokallaðrar mengunarbótareglu (enska:Polluter pays principle) telur bæjarráð Grindavíkurbæjar ekki óeðlilegt að þeir sem losa gjaldskylt sorp greiði fyrir þá þjónustu á gámaplönum Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja. Ef rekstur sorpeyðingarstöðvarinnar hefur svigrúm til lækkunar gjalda telur bæjarráð eðlilegt að sorpeyðingargjöld séu lækkuð almennt á íbúa á Suðurnesjum.11. Umsókn um byggingarleyfi Ásabraut 2
Byggingaráform samþykkt í skipulags- og umhverfisnefndar 11. desember. Nú liggja öll gögn fyrir og hægt að gefa út byggingarleyfi.
Byggingaráform og niðurrif á Ásabraut 2 voru samþykkt í skipulags- og umhverfisnefnd 11. desember 2012. Grenndarkynning hefur farið fram og öll gögn frá hönnuðum og verktaka liggja fyrir.
Bæjarráð samþykkir byggingarleyfið.12. Þjónusta við hælisleitendur.
Innanríkisráðuneytið óskar eftir samstarfsaðilum til að veita þjónustu fyrir hælisleitendur.
Umsögn félagsmálanefndar liggur fyrir, sem telur að svo stöddu ekki tilefni til að sækjast eftir þátttöku í verkefninu.
Bæjarráð tekur undir umsögn félagsmálanefndar.13. Þráðlaust netkerfi í Grunnskólanum
Minnisblað um þráðlaust netkerfi í Grunnskólanum, beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun.
Minnisblað kerfisstjóra um þráðlaust netkerfi í grunnskólanum við Ásabraut lagt fram.
Bæjarráð samþykkir beiðnina, en verkefnið verður fjármagnað sem hluti af breytingum vegna tengingar nýs bókasafns og tónlistarskóla við skólabygginguna.14. Körfubíll fyrir slökkviðlið Grindavíkur
Minnisblað slökkvistjóra lagt fram.
Minnisblað slökkvistjóra lagt fram.
15. Kaup á búnaði í íþróttahús
Kristinn Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs leggur til að keypt verði borð og 300 stólar í íþróttahúsið svo halda megi þar fjölmenna viðburði. Búnaðurinn bætist við gólfefni sem keypt voru fyrr á árinu.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 þar sem heimilt verði að nýta 4.500.000 kr. af fjárheimildum sem áætlaðar eru til uppbyggingar íþróttamannvirkja.