Bæjarráð Grindavíkur - 1383. fundur
- 02.06.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1383
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Formaður leitar heimildar til að bæta máli á dagskrá með afbrigðum.
Sóknaráætlun SSS 2015: tilnefningar í samráðshóp
Samþykkt samhljóða.
Íris Gunnarsdóttir, sumarstarfsmaður og laganemi er gestur fundarins.
1. Skólapúlsinn 2014-2015: Viðbrögð við viðhorfskönnun foreldra
Kjörnir fulltrúar í fræðslunefnd taka þátt í umræðum, ásamt sviðsstjóra.
Til fundarins eru mættir kjörnir fulltrúar í fræðslunefnd; Þórunn Svava Róbertsdóttir, Klara Halldórsdóttir, Ámundínus Örn Öfjörð, Ómar Örn Sævarsson og Eva Björg Sigurðardóttir, varamaður fyrir Guðmund Grétar Karlsson. Auk þeirra Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Halldóra Kristín Magnúsdóttir skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur.
Ákveðið að boða til stefnumótunarfundar um samstarf heimilis og skóla í Grindavík þann 11. júní næstkomandi kl. 17:00 og boðið verður upp á súpu.2. Dagvistun barna: fjölgun rýma í dag-og leikskólavistun
Kjörnir fulltrúar í fræðslunefnd taka þátt í umræðum, ásamt sviðsstjóra.
Til fundarins eru mættir kjörnir fulltrúar í fræðslunefnd; Þórunn Svava Róbertsdóttir, Klara Halldórsdóttir, Ámundínus Örn Öfjörð, Ómar Örn Sævarsson og Eva Björg Sigurðardóttir varamaður fyrir Guðmund Grétar Karlsson. Auk þeirra Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Fulltrúar í fræðslunefnd viku af fundi.
Bæjarráð samþykkir að fjölga leikskólarýmum í Grindavík með því að bæta einni deild við Leikskólann Laut frá og með næsta hausti.
Bæjarstjóra falið að hefja undirbúning flutnings skólastofu frá Ásabraut. Leikskólastjóra Leikskólans Lautar falið að leggja fram tillögu að breytingum á fjárhagsáætlun á árinu 2015.3. Austurvegur 1: umsókn um byggingarleyfi áfangi 2
Álit lögmanns Landslags lagt fram.$line$$line$Tillaga að afgreiðslu.$line$$line$Niðurstöður tilboða í verkið Íþróttamiðstöð Grindavíkur frágangur lóðar lögð fram. Kostnaðaráætlun var 66.499.902 kr. Fjögur tilboð bárust. $line$? Grjótgarðar ehf. 59.232.820 kr., $line$? Ellert Skúlason ehf. 60.358.020 kr.. $line$? Wiium ehf. 63.317.280 kr., $line$? Lóðaþjónustan ehf. 68.320.500 kr. $line$$line$Röð tilboða breyttist ekki eftir yfirferð. $line$$line$Einnig langt fram minnisblað frá Málstofu Reykjavíkur dags. 27. maí 2015. Líkt og áður hefur komið fram var í útboðsgögnum að finna smávægilegt misræmi. Til að ganga úr skugga um lagalega þýðingu þessa var leitað álitsgerðar frá Málflutningsstofu Reykjavíkur. Niðurstaða þeirrar álitsgerðar var sú að heimilt sé að halda áfram með útboðið með þátttöku allra bjóðenda svo framarlega sem misræmið raskaði ekki jafnræði þeirra á milli. Að öðrum kosti þyrfti að endurtaka allt útboðið. Eftir að hafa farið yfir tilboðin er það afstaða bæjarráðs að jafnræði bjóðenda væri ekki raskað enda enginn aðstöðumunur á milli þeirra vegna umrædds misræmis. $line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda. $line$$line$Á árinu 2014 voru ónýttar 75 mkr. fyrir verkið ?uppbyggingu íþróttamannvirkja áfangi 2? vegna seinkunnar framkvæmda. Á fjárhagsáætlun 2015 er gert ráð fyrir 135 mkr. í sama verk og lóðaframkvæmdir. Ljóst er að fjárheimildir til verksins á árinu 2015 eru ekki fullnægjandi. $line$$line$Bæjarráð samþykkir að auka fjárheimild verksins um 30 mkr. með tilfærslu á fé innan fjárfestingaáætlunar ársins.
Framhald frá fundi 1382.
Álit lögmanns Landslags arkitekta lagt fram.
Niðurstöður tilboða í verkið Íþróttamiðstöð Grindavíkur frágangur lóðar lögð fram. Kostnaðaráætlun var 66.499.902 kr. Fjögur tilboð bárust.
Grjótgarðar ehf. 59.232.820 kr.,
Ellert Skúlason ehf. 60.358.020 kr..
Wiium ehf. 63.317.280 kr.,
Lóðaþjónustan ehf. 68.320.500 kr.
Röð tilboða breyttist ekki eftir yfirferð.
Einnig lagt fram minnisblað frá Málflutningsstofu Reykjavíkur dags. 27. maí 2015. Líkt og áður hefur komið fram var í útboðsgögnum að finna smávægilegt misræmi. Til að ganga úr skugga um lagalega þýðingu þessa var leitað álitsgerðar frá Málflutningsstofu Reykjavíkur. Niðurstaða þeirrar álitsgerðar var sú að heimilt sé að halda áfram með útboðið með þátttöku allra bjóðenda svo framarlega sem misræmið raskaði ekki jafnræði þeirra á milli. Að öðrum kosti þyrfti að endurtaka allt útboðið. Eftir að hafa farið yfir tilboðin er það afstaða bæjarráðs að jafnræði bjóðenda væri ekki raskað enda enginn aðstöðumunur á milli þeirra vegna umrædds misræmis.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
Á árinu 2014 voru ónýttar 75 mkr. fyrir verkið ,,uppbyggingu íþróttamannvirkja áfangi 2" vegna seinkunnar framkvæmda. Á fjárhagsáætlun 2015 er gert ráð fyrir 135 mkr. í sama verk og lóðaframkvæmdir. Ljóst er að fjárheimildir til verksins á árinu 2015 eru ekki fullnægjandi.
Bæjarráð samþykkir að auka fjárheimild verksins um 30 mkr. með tilfærslu á fé innan fjárfestingaáætlunar ársins.4. Grunnskólinn: Ráðningar kennara skólaárið 2015-2016
Fræðslunefnd leggur til að framlengd verði heimild til að greiða starfsfólki, sem útskrifaðist með B.Ed. gráðu í grunn- og/eða leikskólakennarafræðum frá og með árinu 2012, sömu laun og þeim sem eru með sömu gráðu og leyfisbréf að auki, að því tilskildu að undanþága fáist fyrir ráðningu þeirra frá undanþágunefnd. Heimildin gildi næsta skólaár.
Bæjarráð samþykkir tillögu fræðslunefndar.5. Íslensk sjávarklasinn: tillaga að framlengdum samstarfssamningi
Sjávarklasinn óskar eftir því að framlengja samninginn óbreyttan um 2 ár.
Íslenski Sjávarklasinn óskar eftir því að framlengja samstarfssamning við Grindavíkurbæ óbreyttan um 2 ár. Árlegur kostnaður er 300.000 kr.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við Íslenska sjávarklasann og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.6. Knattspyrnudeild UMFG: ósk um boltaskúr
Knattspyrnudeild UMFG óskar eftir því að settur verði upp boltaskúr við knattspyrnuvöllinn.
Formaður leggur til að erindinu verði hafnað, og umsækjendum bent á að hægt er að finna geymslu undir bolta og búnað í öðrum mannvirkjum á svæðinu.
Tillagan er samþykkt með atkvæðum B og G lista, gegn atkvæði D lista.7. Ný íþróttamiðstöð: Samantekt á athugasemdum
framhald frá fundi 1382. Gögn frá verkeftirlitinu koma um hádegi 2. júní
Framhald frá fundi 1382.
Samantekt verkeftirlitsmanns á athugasemdum lagt fram, flokkað eftir ábyrgðarsviði.
Byggingafulltrúa falið að fylgja málinu eftir.8. Starfsmannastefna Grindavíkurbæjar: breytingatillaga vegna heilsustyrkja
Bæjarstjóri leggur fram breytingatillögu við kafla um heilsueflingu í Starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar. Markmið breytinganna er að koma betur til móts við mismunandi heilsueflingu starfsmanna. Jafnframt er gerð tillaga um nýjan kafla um samgöngusamninga.
Ekki er gert ráð fyrir að breytingin hafi í för með sér hækkun á fjárheimildum.
Lagt fram til kynningar.9. Jarðirnar Vík, Rafnshús og hluta Júlíusarbletts í Grindavík.
Von er á ítarlegri gögnum frá Kristólínu um stærð og legu landsins.
Framhald frá fundi 1381.
Hugmyndir landeigenda um söluverð landsins lagðar fram.
Bæjarráð hefur ekki áhuga á kaupum á umræddu landi, þar sem verðhugmyndir eru umfram það sem bæjarráð telur eðlilegt.10. Sóknaráætlun SSS 2015: tilnefningar í samráðshóp
Bæjarráð tilnefnir Kristínu Maríu Birgisdóttur, Mörtu Sigurðardóttur, Ómar Davíð Ólafsson og Guðmund Grétar Karlsson í samráðshópinn.