Bæjarráð Grindavíkur - 1377. fundur
- 07.04.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1377
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Beiðni um viðbótarstarfsdag
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu-og fræðslusviðs kynnti málið.
Fræðslunefnd leggur til að leikskólum verði veitt heimild fyrir fimmta starfsdaginn skólaárið 2015-2016. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að kanna viðhorf foreldra til starfsdaga í gegnum Skólapúlsinn í næstu foreldrakönnun.
Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar og hvetur til þess að áfram verði leitast við að starfsdagar valdi sem minnstu raski á starfsemi leikskólanna.2. Hlutfall ófaglærðra á Leikskólanum Laut
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu-og fræðslusviðs kynnti málið.
Fræðslunefnd hefur fjallað um hlutfall leikskólakennara af þeim stöðugildum sem sinna kennslu, umönnun og uppeldi barna í leikskólanum Laut og leggur til við bæjarráð að gerð verði sérstök aðgerðaráætlun til að bregðast við aðstæðunum. Jafnframt leggur nefndin til að skólastjóra verði heimilt að auka stjórnunarhlutfall aðstoðarleikskólastjóra í 100% tímabundið til loka skólaársins.
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun Leikskólans Lautar sem nemur kr. 1.400.000 á launalið og kr. 350.000 vegna launatengdra gjalda.
Bæjarráð samþykkir að heimilt verði að auka stjórnunarhlutfall aðstoðarleikskólastjóra til áramóta og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 1.750.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé. Jafnframt felur bæjarráð stjórnendum leikskólans Lautar að vinna tillögu að aðgerðaáætlun sem hafi það að markmiði að auka hlutfall leikskólakennara við Leikskólann Laut. Tillagan verði lögð fyrir fræðslunefnd fyrir júnífund nefndarinnar.3. Leikskóli: Stuðningur v/fatlaðs barns
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu-og fræðslusviðs kynnti málið og óskaði eftir heimild til viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 5.603.000 kr. til að ráða stuðningsfulltrúa fyrir börn með fötlunargreiningu í leikskóla.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 5.603.000 kr sem komi til lækkunar á handbæru fé.4. Austurvegur 1: umsókn um byggingarleyfi áfangi 2
Lóðarhönnun kynnt, ásamt kostnaðaráætlun.
Bæjarstjóri kynnti tillögu að lóðarhönnun, ásamt kostnaðaráætlun.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að bjóða framkvæmdina út í samræmi við Innkaupareglur Grindavíkurbæjar.5. Ársuppgjör 2014: Grindavíkurbær og stofnanir
Skýrslur um stjórnsýslu og innra eftirlit lagðar fram
Skýrslur KPMG endurskoðunar um stjórnsýslueftirlit og innra eftirlit lagðar fram.
6. Almenningssamgöngur: Endurgreiðsla farmiða
Edda Auðardóttir fer fram á að Grindavíkurbær endurgreiði rútumiða sem seldir voru í umboðssölu fyrir SBK, en ógiltust við gildistöku nýs samgöngukerfis um áramótin.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu og bendir á að Grindavíkurbær seldi miðana í umboðssölu fyrir SBK og því eðlilegt að beina fyrirspurninni þangað.7. Fjölmenningarstefna: tillaga B-lista
drög að verkefnislýsingu lögð fram. Ef hún er samþykkt, þá þarf að tilnefna fólk í verkefnishóp. Set inn tvær fjölmenningarstefnur til upplýsingar. Hægt að lesa fleiri á vef Fjölmenningarseturs. mcc.is
Bæjarstjóri kynnti drög að verkefnislýsingu fyrir gerð fjölmenningarstefnu Grindavíkurbæjar. Jafnframt lögð fram dæmi um fjölmenningarstefnur sveitarfélaga.
8. Saman-hópurinn: Ósk um styrk
Samanhópurinn óskar eftir styrk til forvarnarstarfs hópsins á árinu 2015.
Bæjarráð samþykkir að veita 50.000 kr. styrk til verkefnsins.9. Vindorkugarður á Reykjanesi: viljayfirlýsing
Tillaga EAB um gerð viljayfirlýsingar milli fyrirtækisins og Grindavíkurbæjar um vindorkugarð lögð fram. Áætlanirnar eru á frumstigi og snúast eins og er að því hvort koma eigi upp mælitækjum til að mæla kosti vindmyllugarðs á svæðinu.
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.