Bæjarráð Grindavíkur - 1367. fundur
- 02.12.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1367
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Tillaga um stefnumótun á þjónustusvæði Suðurnesja um málefni fatlaðs fólks.
Drög að umsókn um undanþágu lögð fram. Ég er að vinna í henni og kem vonandi inn í gáttina í kvöld.
Bæjarstjóri lagði fram drög að ósk Grindavíkurbæjar um undanþágu frá ákvæðum 2. mgr. 4. gr. laga nr. 59/1992 um lágmarksíbúafjölda á þjónustusvæði málefna fatlaðs fólks.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.2. Viðauki við fjárhagsáætlun 2014 vegna starfsmannamála
Bæjarstjóri lagði fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2014 vegna ófyrirséðs kostnaðar við starfsmannamál og vegna breytinga á kjarasamningum starfsmanna sveitarfélagsins, að fjárhæð 11,8 milljónir króna sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki að fjárhæð 11,8 milljónir króna sem komi til lækkunar á handbæru fé.3. Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2014 vegna deilda innan málaflokksins félagsþjónustu
Sviðsstjóri félagsþjónustu og fræðslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2014 vegna tveggja deilda í félagsþjónustu.
Annars vegar til hækkunar á fjárheimild til búsetuþjónustu barna 02-562-4341 að fjárhæð kr. 19.400.000.
Hinsvegar til hækkunar á fjárheimild til fjárhagsaðstoðar 02-111 að fjárhæð kr. 8.500.000.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 27,9 milljónir kr. sem sem komi til lækkunar á handbæru fé.4. Gjaldskrá dagforeldraþjónustu fyrir 18 mánaða og eldri
Minnisblað sviðsstjóra félagsþjónustu-og fræðslusviðs og leikskólafulltrúa varðandi gjaldskrá dagforeldraþjónustu fyrir eldri en 18 mánaða lagt fram.
Bæjarráð gerir ákveðnar breytingar á tillögunni og vísar henni til umræðu og umsagnar í fræðslunefnd.5. Umferðaröryggisáætlun 2014-2017
Drög að Umferðaröryggisáætlun 2014-2017: Umsögn - ábendingar. Fyrstu drög að Umferðaröryggisáætluninni liggja fyrir í kjölfar íbúafundar, yfirferðar í umferðaröryggisnefnd, og umsögn skipulags- og umhverfisnefndar og frágangs verkefnisstjóra. Áætluninni er nú vísað til umsagnar bæjarráðs. Jafnframt er óskað eftir fleiri ábendingum um aukið umferðaröryggi í bænum. Í kjölfar ábendinga bæjarráðs tekur verkefnisstjóri þær inn í áætlunina og leggur svo uppfærða áætlun fyrir umferðaröryggisnefndina. Í kjölfarið verður hún svo lögð fyrir bæjarstjórn til endanlegrar staðfestingar.
Drög að Umferðaröryggisáætlun 2014-2017 lögð fram til umsagnar bæjarráðs.
Bæjarráð vísar áætluninni aftur til afgreiðslu í umferðaröryggisnefnd.6. Tjaldsvæði - útboðsgögn
Tillaga að útboðsgögnum fyrir tjaldsvæði Grindavíkur lögð fram.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að rekstur tjaldsvæðisins verði boðinn út.7. Lóðarleigusamningur á iðnaðarsvæði i5
Leggja drög að samkomulagi fram
Bæjarstjóri kynnti drög að kaupsamningi milli ríkissjóðs og Grindavíkurbæjar á hluta landspildu úr landi jarðarinnar Húsatófta í Grindavík, landnr. 221801. Landspilda sú sem hið selda er tekið úr er 70,35ha. að stærð sem skipulagt er sem iðnaðarsvæði.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að bæjarstjóra verði veitt heimild til undirritunar.8. Ársuppgjör 2014, Grindavíkurbær og stofnanir
vinna við ársuppgjör 2014 er hafin. Kynning á vinnuferlinum.
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs kynnti að vinna við ársuppgjör Grindavíkurbæjar og stofnana vegna ársins 2014 er hafin.
9. Efnis- og nýtingaráætlun ásamt útboðsgögnum vegna Melhólsnámu
Bæjarráð fól skipulags- og umhverfisnefnd að bjóða námuna út. nefndin leggur til að þeirri ákvörðun verði frestað. Taka þarf afstöðu til þeirrar tillögu
Bæjarráð fól skipulags- og umhverfisnefnd að bjóða rekstur námunnar út. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að þeirri ákvörðun verði frestað þar til ljóst verður hve mikið magn af jarðefnum þarf að typpa vegna jarðvegsframkvæmda á svæðinu.
Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar.10. Skipulag á bæjarskrifstofum Víkurbrautar 62
Áfangaskipting framkvæmda kynnt
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs kynnti áform um skiptingu framkvæmda við breytingar á bæjarskrifstofum. Í fyrri áfanga verður því húsnæði sem áður hýsti bókasafnið og núverandi fundarsal bæjarstjórnar breytt í fundarsali, skrifstofur, salerni fyrir hreyfihamlaða og kaffistofu fyrir starfsmenn.
11. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Staðfesting ráðuneytis lögð fram. þá er hægt að leggja fram tillögu um skipan í nýja umhverfis-og ferðamálanefnd á næsta fundi bæjarstjórnar.
Staðfesting innanríkisráðuneytis lögð fram, en ný Samþykkt um stjórn og fundarsköp tekur gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
12. Þjónustugjaldskrár Grindavíkurbæjar 2015
Gjaldskrá Slökkviliðs Grindavíkur lögð fram.
Tillaga að gjaldskrá Slökkviliðs Grindavíkur fyrir árið 2015 lögð fram.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.13. Búsetumál eldri borgara í Grindavík
formaður bæjarráðs leggur til að Verkalýðsfélagi Grindavíkur og Sjómannafélagi Grindavíkur verði boðið að taka þátt í uppbyggingu íbúða við Víðihlíð.
Formaður bæjarráðs leggur til að Verkalýðsfélagi Grindavíkur og Sjómannafélagi Grindavíkur verði boðið að taka þátt í uppbyggingu íbúða við Víðihlíð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að rita félögunum bréf og bjóða þeim þátttöku í verkefninu.14. Beiðni um umsögn um umsókn Fiskmarkaðs Grindavíkur ehf. um rekstrarleyfi til að reka gististað í flokki II að Hafnargötu 28 í Grindavík.
Bæjarráð gerir ekki athugsemdir við umsóknina, og vísar að öðru leyti til umsagna byggingafulltrúa og slökkvistjóra.
15. Beiðni um umsögn frá velferðarnefnd alþingis um frumvarp til laga um 40 stunda vinnuviku o.fl.(færsla frídaga að helgum), 258. mál.
Bæjarráð fagnar því að fram sé komið frumvarp sem geti m.a. stuðlað að fjölskylduvænna samfélagi.
16. Beiðni um umsögn frá velferðarnefnd Alþingis um frumvarp til laga um almannatryggingar (aldurstengd örorkuuppbót), 35. mál
Lagt fram.
17. Beiðni um umsögn frá menntamálanefnd Alþingis um tillögu til þingsályktunar um endurskoðun laga um lögheimili, 33. mál.
Verði innanríkisráðherra falið að setja á fót starfshóp sem undirbúi endurskoðun laga um lögheimili, leggur bæjarráð til að þeim starfshópi verði jafnframt falið að leggja fram tillögur að útfærslu um tvöfalda lögheimilisskráningu barna.
18. Beiðni um umsögn frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis um tillögu til þingsályktunar um flutning Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar, 78. mál.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar ítrekar ályktun sína frá því í nóvember 2013, og styður að Alþingi feli innanríkisráðherra að hefja undirbúning að flutningi Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar.
19. Beiðni um umsögn frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (afnám lágmarksútsvars), 29. mál.
Bæjarráð Grindavíkur telur mikilvægt að við mat á því hvort æskilegt sé að afnema lágmarksútsvar, séu könnuð áhrif slíkra breytinga á aðra tekjustofna sveitarfélaga, ekki síst Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og framlög hans til sveitarfélaga sem kjósa að afnema lágmarksútsvar.
20. Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja.
B-listi hyggst gera breytingu á sínum fulltrúa. Auk þess munu varamenn verða tilnefndir.
B-listi gerir breytingu á fulltrúa sínum í nefndinni.
Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm verður fulltrúi í nefndinni í stað Gunnlaugs Jón Hreinssonar.