Bæjarráð Grindavíkur - 1333. fundur
- 05.11.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1333
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Dagbjartur Willardssonvaramaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Aðalfundur S.S.S. Samþykkar ályktanir.
Ályktanir aðalfundar SSS lagðar fram.
2. Beiðni um endurnýjun á samningi vegna umsýslu á eignum Grindavíkurbæjar á íþróttasvæðinu. (Gula húsið, búningsklefar og salerni)
Knattspyrnudeild UMFG óskar eftir nýjum samningi vegna umsýslu á eignum Grindavíkurbæjar á íþróttasvæðinu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að afla frekari gagna og leggja erindið fyrir frístunda- og menningarnefnd til umfjöllunar.
3. Beiðni um heimild til að leigja Kirkjukot út fyrir dagforeldraþjónustu
Minnisblað og tillaga að leigusamningi lögð fram
Minnisblað bæjarstjóra lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna aðra möguleika á húsnæði fyrir dagforeldraþjónustu.4. Beiðni um undanþágu á greiðslu íbúðaréttar í Víðihlíð
Bæjarráð samþykkir erindið.
Bæjarráð hefur áður samþykkt að þeir sem ekki greiða íbúðarétt í Víðihlíð greiði 25% hærri leigu en þeir sem greiða fyrir íbúðaréttinn.
Bæjarráð leggur jafnframt til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki að fjárhæð kr. 3.429.000 sem komi til lækkunar á handbæru fé.5. Bréf frá Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga um fjármálareglur og samanburð ársreikninga 2012
Bréf frá Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga sem sent er öllum sveitarfélögum um fjármálareglur og samanburð ársreikninga 2012 lagt fram.
Sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs falið að svara erindinu.6. Fyrirkomulag fjárhagsaðstoðar hjá Grindavíkurbæ
Minnisblað félagsráðgjafa um fyrirkomulag fjárhagsaðstoðar hjá Grindavíkurbæ lagt fram.
7. Hlutabréf Grindavíkurbæjar í HS veitum
Drög að samningi um helstu skilmála kaupsamnings lögð fram
Drög að samkomulagi um helstu skilmála kaupsamnings lögð fram.
Bæjarstjóra falið að undirrita samkomulagið með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.8. Kvenfélag Grindavíkur 90 ára
Kvenfélag Grindavíkur óskar eftir styrk vegna 90 ára afmælis félagsins 24. nóvember n.k.
Bæjarráð Grindavíkur samþykkir að veita Kvenfélagi Grindavíkur 50.000 kr. styrk vegna afmælishátíðar félagsins þann 24. nóvember næstkomandi. Jafnframt fær Kvenfélagið gjaldfrjáls afnot af sal Hópsskóla til hátíðahalda þann dag.
9. Lóð undir gróðurhús
viljayfirlýsing og næstu skref
Bæjarstjóri fór yfir stöðu málsins.
10. Samtök um kvennaathvarf óska eftir rekstrastyrk fyrir árið 2014.
Bæjarráð samþykkir að veita 50.000 kr. rekstrarstyrk til Samtaka um kvennaathvarf á árinu 2014 og vísar fjárhæðinni til fjárhagsáætlunar 2014.
11. Stígamót óska eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2014
Bæjarráð samþykkir að veita 50.000 kr. styrk til Stígamóta á árinu 2014 og vísar fjárhæðinni til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2014.
12. Styrkir til nýsköpunar og þróunar í Grindavík
Skýrslur Codlands um framkvæmd tveggja verkefna samkvæmt samningum um styrk til nýsköpunar og þróunar í Grindavík lagðar fram.
13. Sölumeðferð félagsleg íbúð, Leynisbraut 13c, 030201, fastanr. 209-1856
Kauptilboð lagt fram til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir kauptilboð í eignina Leynisbraut 13c íbúð 030201.
Marta situr hjá.
Bæjarstjóra falið að undirrita kaupsamning og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.14. Viðræður við velferðarráðuneytið um yfirtöku Grindavíkurbæjar á rekstri hjúkrunarheimilisins í Víðihlíð og heimahjúkrunar
Fundargerð frá fundi í viðræðuhópi um yfirtöku Grindavíkurbæjar á rekstri hjúkrunarheimilsins í Víðihlíð lögð fram.
15. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, ráðning
Listi yfir umsækjendur lagður fram ásamt tillögu að lokaviðtalshóp
Umsóknarfrestur um starf sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs rann út 21. október síðastliðinn. Umsækjendur um starfið voru 31 og eru í stafrófsröð:
1. Agnar Júlíusson,
2. Ágúst Bjarni Garðarsson,
3. Árni Guðmundsson,
4. Áróra Gústafsdóttir,
5. Birgir Sverrisson,
6. Björk Bergsdóttir,
7. Dagbjört Agnarsdóttir,
8. Dagmar Jóna Elvarsdóttir,
9. Daníel Guðni Guðmundsson,
10. Ester Sveinbjarnardóttir,
11. Gísli Rúnar Gylfason,
12. Guðmundur E. Finnson,
13. Guðmundur Stefán Gunnarsson,
14. Guðrún Jóna Magnúsdóttir,
15. Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir,
16. Halldór Karl Hermannsson,
17. Helgi Tumason,
18. Hjálmar Jónsson,
19. Jóna Rut Jónsdóttir,
20. Kristín Ólafsdóttir,
21. Nikólína Jónsdóttir,
22. Ómar Örn Sævarsson
23. Ragna Gestsdóttir,
24. Ragnar Karl Jóhannsson,
25. Ragnheiður Eyjólfsdóttir,
26. Siggeir Fannar Ævarsson,
27. Sigurbjörg Gunnarsdóttir,
28. Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir,
29. Trausti Páll Þórsson,
30. Þorsteinn Gunnarsson,
31. Ægir Viktorsson,
Ráðgjafi hjá Intellecta hefur lokið við yfirferð umsókna og tekið fyrstu viðtöl. Lagt er til að 6 umsækjendur komi til viðtals hjá bæjarráði.