50 ára afmælisnefnd Grindavíkurbæjar - 1. fundur
- 26.04.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1
- Ritari: Eggert Sólberg Jónsson
Nefndarmenn
- Kristín Pálsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Aðalgeir Johansenaðalmaður
- Lára Lind Jakobsdóttiraðalmaður
- Emilía Ósk Jóhannesdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Eggert Sólberg Jónssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Kosning formanns 50 ára afmælisnefndar Grindavíkurbæjar
Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar skal nefndin kjósa sér formann.
Samþykkt samhljóða að Ásrún Helga Kristinsdóttir verði formaður nefndarinnar.
2. Erindisbréf 50 ára afmælisnefndar Grindavíkurbæjar
Erindisbréf nefndarinnar lagt fram til kynningar og umræðu.
Erindisbréf nefndarinnar lagt fram til kynningar. Samkvæmt erindisbréfinu er hlutverk nefndarinnar eftirfarandi:
* Undirbúa hátíðarhöld í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar.
* Óska eftir og vinna úr hugmyndum frá íbúum og stofnunum að viðburðum og öðru því sem sveitarfélagið getur framkvæmt til að minnast tímamótanna.
* Láta taka saman og gefa út eða birta upplýsingar um sögu Grindavíkurbæjar með sérstaka áherslu á aðdraganda þess að Grindavíkurbær fékk kaupstaðarréttindi 10. apríl 1974 .
* Láta vinna vefsíðu sem vera skal kynningar- og fræðsluvettvangur fyrir afmælisárið.
* Láta hanna afmælismerki sem fanga skal anda kaupstaðarafmælisins.
* Hvetja íbúa til að beina sjónum sínum að viðburðum á afmælisárinu.3. Starfsáætlun 50 ára afmælisnefndar Grindavíkurbæjar
Rætt um helstu verkefni nefndarinnar og lögð drög að starfsáætlun.
Rætt um helstu verkefni nefndarinnar. Sviðsstjóra falið að vinna drög að starfsáætlun fyrir næsta fund.
4. Saga Grindavíkurbæjar
Nefndin skal láta taka saman upplýsingar um sögu Grindavíkurbæjar. Rætt um fyrirkomulag verkefnisins.
Samkvæmt erindisbréfi skal nefndin láta taka saman upplýsingar um sögu Grindavíkurbæjar. Rætt um nálgun og mögulega framsetningu efnis.
5. 50 ára afmælismerki Grindavíkurbæjar
Nefndin skal láta hanna afmælismerki sem fangar anda kaupstaðarafmælisins.
Samkvæmt erindisbréfi skal nefndin láta hanna afmælismerki sem fangar anda kaupstaðarafmælisins. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.